Hinsegin Reykjavík – borgin okkar allra

Góð borg einkennist af fjölmörgu. Í aðdraganda borgar­stjórnarkosninga í vor varð okkur tíðrætt um frjálslynda og jafnréttissinnaða borg þar sem íbúar eru jafnir, án tillits til kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, kyneinkenna eða annars. Það er því góð tilfinning að koma að stjórn borgar með meirihluta sem leggur áherslu á mannréttindi og velsæld allra íbúa sinna.

Hinsegin dagar eru í raun merkileg hátíð – grasrótarviðburður sem berst fyrir jafnrétti og sýnileika en setur um leið gleðina á oddinn og gæðir borgina okkar lit og lífi. Í gegnum tíðina hefur hinsegin fólk mátt þola fordóma, skerðingu á frelsi og því miður ofbeldi. Það er því ekki annað hægt en að fagna þeim miklu breytingum sem orðið hafa á síðustu áratugum en á sama tíma er það deginum ljósara að við verðum að halda áfram á sömu braut. Það er sorgleg staðreynd að réttindi sem náðst hafa með þrotlausri baráttu geta verið tekin aftur líkt og erlend dæmi sanna og því verðum við að vera samtaka á vitundarvaktinni.

Við munum hér eftir sem hingað til láta verkin tala í þágu frjálslyndis og jafnréttis og ég mun svo sannarlega gera hvað ég get svo Reykjavíkurborg leggi áfram sitt af mörkum og fari áfram með góðu fordæmi eins og borgin hefur gert í áraraðir. Fyrr á þessu ári sótti borgin um inngöngu í samtök regnbogaborga (Rainbow Cities Network) með það að markmiði að staðfesta einlægan ásetning sinn um að virða og styðja fjölbreytileikann. Við viljum fjölbreytta borg fyrir alla, sem byggir á mannréttindum og frjálslyndi.

Mér er það því bæði ljúft og skylt að taka virkan þátt í Hins­egin dögum og hlakka mikið til að ganga í gleðigöngunni á laugar­daginn í nafni mannréttinda, frelsis og betra samfélags.

Höfundur er formaður borgarráðs. Greinin birtist á Vísi þann 8.8.2018.