Reykjavík til þjónustu reiðubúin

Í aðdraganda borgarstjórnarkosninga síðastliðið vor var okkur í Viðreisn tíðrætt um þjónustuborgina Reykjavík. Þjónustuborgina þar sem notendamiðuð nálgun er höfð að leiðarljósi, íbúum eru spöruð sporin, fyrirtækjum gert auðvelt að sækja um leyfi af ýmsum toga og svo framvegis. Við sögðumst vilja einfalda líf borgarbúa og þannig gera Reykjavík eftirsóttari og samkeppnishæfari borg fyrir íbúa og atvinnulíf.

Eflaust hafa einhverjir talið að þarna væri einfaldlega verið að mála upp fallega mynd sem hljómaði vel í eyrum allra en yrði aldrei að veruleika. En því fer fjarri. Þessar áherslur okkar rímuðu nefnilega vel við stefnur annarra flokka sem í dag mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur, líkt og sést í þeim málefnasamningi sem unnið er eftir. Meirihlutanum er full alvara og mun í engu gefa eftir á þessu sviði. Því til staðfestingar má nefna tillögu Viðreisnar, Pírata, Samfylkingar og Vinstri grænna um innleiðingu þjónustustefnu sem borgarstjórn samþykkti síðastliðinn þriðjudag.

Tillagan kveður á um aukinn kraft við innleiðingu þjónustustefnu borgarinnar með sérstaka áherslu á notendamiðaða nálgun í nærþjónustu við borgarbúa, skilvirkar rafrænar lausnir, fækkun skrefa og einföldun ferla í allri þjónustu borgarinnar. Þar er meðal annars átt við skipulags- og byggingarmál, skóla- og frístundamál og velferðarmál sem og aðra þjónustuþætti sem snúa að íbúum og atvinnulífi. Innleiðingin verður viðamikil og mun fara inn á mörg svið borgarinnar með aðkomu margra aðila en vinnan verður leidd af formanni borgarráðs og formanni mannréttinda- og lýðræðisráðs auk annarra hlutaðeigandi aðila sem munu meðal annars móta forgangsröðun verkefna.

Meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur er samhuga um aukna áherslu á góða þjónustu og þróun rafrænna lausna, enda er það mikið hagsmunamál fyrir borgarbúa. Betri þjónusta styttir nefnilega ekki bara biðtíma og eykur ánægju heldur eykur einnig skilvirkni og dregur úr kostnaði til lengri tíma litið. Minni kostnaður skilar sér svo á endanum beint til íbúanna, hvort sem er í formi fjárfestinga í þeirra þágu eða einfaldlega lægra útsvari.

Viðreisn mun áfram beita sér fyrir einfaldara lífi í Reykjavík með frjálslyndi, jafnrétti, ábyrgan rekstur og þjónustu við íbúa að leiðarljósi. Raunar höfum við þegar uppskorið umtalsvert þó ekki sé lengra liðið frá kosningum, en þar má nefna að borgarstjórn hefur þegar samþykkt aukna tíðni stofnleiða Strætó á háannatíma og tilraunaverkefni um sumaropnun leikskóla.

Höfundur er formaður borgarráðs. Greinin birtist á Vísi 18.10.2018.