Á sandi byggði…

Merkilega hljótt hefur verið um alvarleg mistök stjórnenda og stjórnar Sorpu, sem kosta munu skattgreiðendur á höfuðborgarsvæðinu hátt á annan milljarð. Mögulega er það vegna þess hversu há upphæðin er, of há til að venjulegt fólk geti tengt við hana. Líklegra er þó að það þjónar ekki hagsmunum stærsta stjórnmálaflokks landsins að haft sé hátt um þessi mistök.

En í hverju lágu mistökin? Í stuttu máli þá fór Sorpa af stað með uppbyggingu á tveimur verkefnum á svipuðum tíma; sorpflokkunarstöð sem ætlað er að auka endurvinnslu og minnka urðun og gas- og jarðgerðarstöð sem er ætlað að framleiða metan á bílana okkar. Tvær á um ágætar framkvæmdir og nauðsynlegar. Farið var í svokallað alútboð, sem innifelur að hönnun og bygging framkvæmdanna er sett alfarið í hendur tilboðsgjafa.

Aðferð sem gjarnan er notuð í útboðum á stórum verkefnum bæði hér- og erlendis.

Gallinn við þessi útboð var að í þeim gleymdust mikilvægir hlutir á borð við tækjabúnaðinn í flokkunarstöðina, verðbætur á framkvæmdatímabilinu og sökkullinn – það byggir nefnilega enginn hús á sandi.

Eftir sitja skattgreiðendur í Hafnarfirði, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Garðabæ og Reykjavík með reikning sem verður á bilinu 1200-1700 milljónir. Sem er 17% hærra en ætlunin var þegar lagt var upp í þessar fjárfestingar.

Eðlilegt er að við þetta tækifæri sé farið sé nákvæmlega i saumana á því  hvar ábyrgðin á þessu tröllvaxna klúðri liggur.  Um einn og hálfur milljarður var vantalinn í stærstu fjárfestingum fyrirtækisins og það fór framhjá stjórnendum og stjórn.

Við sem fulltrúar íbúa í Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi köllum eftir því að þessir aðilar stígi frá málinu fyrir neyðarstjórn sem fer ofan í kjölinn á allri ákvarðanatöku í þessu mikilvæga fyrirtæki og skoði hvernig hægt er að sinna þeirra hlutverki með bættum árangri og vonandi með auknu hagræði. Ekki veitir af.

Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi Viðreisnar í Hafnarfirði
Karl Pétur Jónsson bæjarfulltrúi Viðreisnar á Seltjarnarnesi
Sara Dögg Svanhildardóttir bæjarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ
Valdimar Birgisson bæjarfulltrúi Viðreisnar í Mosfellsbæ