Úps, óheppileg niðurstaða

Á höfuðborgarsvæðinu starfa 19 heilsugæslustöðvar. Á dögunum láku í fjölmiðla fréttir af þjónustukönnun sem Sjúkratryggingar Íslands létu vinna undir lok síðasta árs. Það er merkilegt að niðurstöðurnar hafi ekki verið kynntar strax og þær lágu fyrir, enda sýna þær jákvæðar fréttir varðandi traust til heilsugæslunnar (74% aðspurðra) og ánægju með þjónustuna (79% aðspurðra). Heilbrigðisráðherra hefur nú skellt í grein af minna tilefni.

En það var fleira bitastætt í könnuninni. Fréttir sem sannarlega eru ekki byr í segl þeirrar ríkisvæðingarstefnu sem núverandi ríkisstjórn rekur af fullum þunga. Sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðvar komu nefnilega betur út en þær ríkisreknu. Um könnunina var því þagað þunnu hljóði þar til fjölmiðlar komust í málið. Um 55.000 einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu hafa valið sér þjónustu þeirra fjögurra sjálfstætt starfandi heilsugæslustöðva sem þar eru starfandi. Þessi hópur er greinilega ánægður með val sitt og það mætti því ætla að stöðvarnar nytu velvildar heilbrigðisyfirvalda. En það er ekki svo vel.

Við búum því miður við stjórnvöld sem hafa unnið þannig að málefnum okkar opinberu heilbrigðisþjónustu að allt snýst um rekstrarform einstakra aðila. Þar sem sjálfstætt starfandi aðilar eru óæskilegur hluti kerfisins. Þar sem þjónustan sjálf, nýliðun og meðferð fjármuna er sett skör neðar en slagurinn við þann hluta heilbrigðisstétta sem vill nýta þekkingu sína og krafta í að skapa fjölbreytni og bjóða upp á nýsköpun.

Undanfarin ár hafa allar heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu verið fjármagnaðar eftir sama kerfi. Það er að segja, í orði en ekki á borði. Staðreyndin er að þær sjálfstætt starfandi bera skarðan hlut frá borði því heilbrigðisyfirvöld hafa sýnt töluverða útsjónarsemi í því að veita fjármagn fram hjá kerfinu inn í ríkisreknu stöðvarnar. Svo rammt kveður að þessu að Samkeppniseftirlitið beindi tilmælum til úrbóta til heilbrigðisráðherra haustið 2017 sem ekki hefur enn verið brugðist við þrátt fyrir pressu frá heilsugæslustöðvunum fjórum. Þeim er kannski nær að standa sig svona vel.

Ríkisvæðingarstefna ríkisstjórnar VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar lætur ekki að sér hæða.