Landsþing Viðreisnar föstudaginn 25. september – fyrri hluti

Stjórn Viðreisnar boðar þriðja landsþing flokksins sem haldið verður föstudaginn 25. september frá kl. 16.00 til 18.30. Hægt er að skrá sig á landsþingið hér.

Vegna þess ástands sem nú ríkir hefur stjórn ákveðið að einungis skuli kosið í helstu embætti sem samþykktir kveða á um og stjórnmálayfirlýsing afgreidd. Landsþinginu verður svo frestað og þar með öðrum dagskrárliðum landsþings, svo sem breytingum á lögum flokksins og öðrum málefnaályktunum. Fundurinn verður alrafrænn og allar upplýsingar um hann má finna hér. Kosningar verða rafrænar og hægt að kjósa í gegnum síma eða tölvu. Til að tryggja öryggi kosninganna verða þinggestir að skrá sig á þar til gerðan kosningavef með rafrænum skilríkjum en tryggt verður að kosningar verði leynilegar og órekjanlegar.

Kosið verður til eftirfarandi embætta:

  1. Formanns Viðreisnar.
  2. Varaformanns Viðreisnar.
  3. Fimm meðstjórnenda og tveggja varamanna stjórnar Viðreisnar.
  4. Formenn málefnanefnda Viðreisnar.

Kjörgengir á landsþingi eru fullgildir félagar. Þeir hafa þar tillögu- og atkvæðisrétt hafi þeir verið skráðir í flokkinn minnst viku fyrir landsþing og skráð sig til setu á landsþingi með fullnægjandi hætti.

Framboðsfrestur til formanns Viðreisnar, stjórnar og formanna málefnanefnda er til kl. 12.00, tveimur dögum fyrir upphaf landsþings. Framboðsfrestur í embætti varaformanns rennur út klukkustund eftir að tilkynnt er um úrslit í formannskjöri.

Hlökkum til að sjá ykkur 25. september næstkomandi.

Skráið hjá ykkur dagsetninguna strax!