Verum byrjendur

Um daginn fékk ég bréf frá Berlín: „Herr Möller, okkur þykir leitt að tilkynna þér að allt sem við kenndum þér í háskólanum fyrir 40 árum er úrelt. Hafir þú ekki stundað símenntun þá biðjum við þig að endursenda verkfræðiskírteinið þitt“. Þar sem ég hef ávallt verið duglegur við að endurmennta mig fékk ég að halda skírteininu mínu!

Tom Vanderbilt, blaðamaður og bloggari, er að gefa út bókina „Byrjendur: Ánægjan og breytingarnar sem símenntun hefur í för með sér“. Þar fjallar Tom um þá bábilju að menntun sé bara ætluð ungu fólki. Hann hvetur til að fólk afli sér menntunar alla ævi, vera forvitinn og prófa nýja hluti langt fram á efri ár, það auki víðsýni, lífsgleði og andlega heilsu. Hann spyr af hverju við hættum flest að læra eftir unglingsárin. Höfum við gleymt ánægjunni sem fylgir því að byrja frá grunni…vera byrjandi í einhverju? Er kannski of seint að kenna gömlum hundi að sitja?

Tom byrjar á einhverju nýju á hverju ári. Í ár lærir hann að tefla, syngja, teikna, kasta keilum og stunda brimbretti. Nýlega tapaði hann fyrir 8 ára strák í skák.Ég hef reynt að læra eitthvað nýtt á hverju ári. Ég var elsti nemandinn í MBA-2009 í HR, trommunámskeið gaf mér innsýn í heim rytmans, gítarnámið byrjar aftur í haust og mótorhjólaprófið færði mér 4.500 kílómetra ævintýraferð um Marokkó í hitteðfyrra.

Í bókinni segir Tom frá því hvaða óteljandi kosti það hefur að vera fullorðinn byrjandi. Hann lýsir því hvað forvitni á efri árum getur verið gefandi… og lengir lífið!

Þótt Berlínarbréfið hafi ekki borist mér í raun eiga skilaboð þess vel við. Gömul prófskírteini falla í verði, ekki síst nú þegar tækni og þekkingu fleygir fram hraðar en nokkru sinni fyrr. Hvað ætlar þú að læra nýtt í haust ágæti lesandi?

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. ágúst 2020