21 okt Val um framboðslista og kosning kjörstjórnar/uppstillinganefndar
Eftir frábært samtal um leiðir við val á framboðslista í síðustu viku ætlar Viðreisn í Reykjavík að boða til félagsfundar þann 21.október klukkan 20:00 hjá Viðreisn, Suðurlandsbraut 22 til að ákveða endanlega hvaða leið við ætlum að velja til að setja saman teymið sem mun leiða okkur til sigurs í borginni í vor.
Á dagskrá verður
1. Val á aðferð við val á framboðslista
2. Kosning kjörstjórnar (ef prófkjör er valið)
3. Kosning uppstillingarnefndar
4. Önnur mál
Viljum við benda þeim sem áhuga hafa á að gefa kost á sér í kjörstjórn eða uppstillingarnefnd að senda póst á reykjavik@vidreisn.is áður en framboðsfrestur rennur út klukkan 12:00 þann 21.október.
Kær kveðja,
Stjórn Viðreisnar í Reykjavík