Guðmundur Gunnarsson leiðir í Norðvestur

Guðmundur Gunnarsson, fyrrum bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar mun leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Þetta kom fram í myndbandi á Instagram og Facebook síðum Viðreisnar rétt í þessu.

“Ég ber sterkar taugar til heimahaganna og vil vinna að því að rétta hlut svæðisins. Þess vegna ákvað ég að bjóða mig fram,“ segir Guðmundur þegar hann var spurður að því af hverju hann vill komast á þing. „Það býr kraftur í Norðvesturkjördæmi og þann kraft þarf að leysa úr læðingi með breyttum áherslum og ferskum vindum. Þar sem leiðarstefið er að almannahagsmunir trompi sérhagsmuni.“

En hver eru helstu baráttumálin í Norðvesturkjördæmi? „Til að fjölbreytt atvinnulíf á svæðinu fái að vaxa og dafna þarf að efla heilbrigðisþjónustu, samgöngur, nýsköpun og menntun á svæðinu. Íbúar Norðvesturkjördæmis eiga rétt á sömu grunnþjónustu og aðrir, óháð búsetu. Það er stóra réttlætismálið sem ég mun beita mér fyrir. Viðreisn er flokkur jafnréttis og skynsamlegra kerfisbreytinga í sátt við samfélag og náttúru.  Sú framtíð raungerist í stefnu Viðreisnar og að þeirri framtíðarsýn vil ég stefna.”

Um Guðmund má segja að hann er þolinmóður, réttsýnn og fyndinn. Svo hefur hann leynda eftirhermuhæfileika. Eða það segja þau sem þekkja hann best. Þar fyrir utan er hann með meistarapróf í alþjóðaviðskiptum og BA próf í fjölmiðlafræði. Guðmundur starfaði áður við fréttir og dagskrárgerð hjá RÚV en hefur síðustu 11 ár gegnt stjórnunarstöðum hjá 66°NORÐUR, AFS á Íslandi og nú síðast sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.

Uppstillingarnefnd Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi er enn að störfum og verður heildarlisti kynntur síðar.