Theodóra S. Þorsteinsdóttir leiðir lista Viðreisnar í Kópavogi

Listi Viðreisnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14 maí nk. var samþykktur á fjölmennum félagsfundi í gærkvöld. Á listanum eru einstaklingar sem endurspegla hið fjölbreytta samfélag sem Kópavogur er. Listinn er góð blanda af reynslu, aldri, búsetu og ferskum andblæ sem fæst með nýliðun en listinn er settur saman sem fléttulisti.

Í fyrsta sæti er Theodóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi. Í öðru sæti er Einar Örn Þorvarðarson bæjarfulltrúi. Í þriðja sæti er Jóhanna Pálsdóttir grunnskólakennari.

Viðreisn hefur skýra framtíðarsýn um uppbyggingu skilvirkrar og stafrænnar þjónustu fyrir íbúa Kópavogsbæjar, sér fjölmörg tækifæri til að treysta fjárhag bæjarins, efla enn frekar skólaþróun og lýðheilsu og vill að börn fái hollan og góðan mat í skólanum sínum án endurgjalds. Sóknarfæri næstu fjögurra ára við að gera Kópavog að vistvænu og heilsueflandi bæjarfélagi eru gríðarleg. Viðamikil skipulagsmál munu einkenna kjörtímabilið og verður að vanda til verka, bæði hvað varðar þéttingu byggðar og uppbyggingu nýrra hverfa til að tryggja að til verði sjálfbærir hverfiskjarnar þar sem hlúð er að vellíðan íbúa og blómstrandi þjónustu.

Oddvitinn, Theodóra S. Þorsteinsdóttir segir aðspurð að hún vilji gjarnan leiða þau verkefni sem framundan eru því hennar reynsla og þekking, m.a. af því að koma á samtali og samráði við íbúa hafi reynst vel, ekki síst til að tryggja sátt og samvinnu. „Öll stór mál varða ákvarðanir um hagsmuni og nærumhverfi fólks og kjörnir fulltrúar geti eingöngu öðlast skilning á þeim hagsmunum með því að hlusta. Þess vegna ætti íbúasamráð alltaf að vera fyrsta skrefið í allri ákvarðanatöku,“ segir Theodóra.

Framboðslisti Viðreisnar í Kópavogi 2022:

1. Theodóra S Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi
2. Einar Örn Þorvarðarson bæjarfulltrúi
3. Jóhanna Pálsdóttir grunnskólakennari
4. Kristján Ingi Gunnarsson markaðssérfræðingur
5. María Ellen Steingrimsdottir lögfræðingur
6. Leó Petursson, vallarstjóri/handboltamaður
7. Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir, stjórnmálafræðingur
8. Andrés Pétursson, stjórnandi Nordplus
9. Soumia I Georgsdóttir atvinnurekandi
10. Elvar Helgason viðskiptafræðingur
11. Telma Huld Ragnarsdóttir læknir
12. Ásgeir Þór Jónsson kokkur
13. Auður C Sigrúnardóttir, MA klínísk sálfræði/jógakennari
14. Andri Már Eggertsson, starfsmaður leikskóla/íþróttafréttamaður
15. Sóley Eiríksdóttir sagnfræðingur
16. Arnar Þórðarson pípulagnaingarmaður
17. Sylvía Rós Arnarsdóttir nemi
18. Bergþór Skúlason tölvunarfræðingur
19. Þóra S. Þorgeirsdóttir skrifstofufullrúi
20. Tryggvi Magnús Þórðarson verkfræðingur
21. Anna Þorbjörg Toher, BA List- og ferðamálafræði
22. Sigvaldi Einarsson, fyrsti formaður Viðreisnar í Kópavogi