Aðalfundur Viðreisnar í Reykjanesbæ

Aðalfundur Viðreisnar í Reykjanesbæ

Hvenær

27/05    
19:30 - 21:30

Hvar

Park Inn Reykjanesbæ
Hafnargata 57, 230 Reykjanesbær

Event Type

Kæru félagsmenn Viðreisnar á Suðurnesjum

 

Aðalfundur Viðreisnar í Reykjanesbæ verður haldinn þriðjudaginn 27. maí n.k. á Hóteli Park Inn, Reykjanesbæ.

 

Athugið að undir lið 4. Samþykktir félagsins, verður lagt til að breyta heiti félagsins í Viðreisn á Suðurnesjum og að það nái til allra viðreisnarfélaga í Reykjanesbæ, Grindavík, Vogum og Suðurnesjabæ. Einnig að lögheimili félagsins verði fært til höfuðstöðva Viðreisnar, að Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Fundurinn verður því opinn öllum félagsmönnum á Suðurnesjum og geta viðreisnarfélagar á Suðurnesjum, sem ekki eru búsettir í Reykjanesbæ einnig boðið sig fram til formanns, stjórnar eða sem skoðunarmenn reikninga, með þeim fyrirvara að nafnabreyting og breyting á starfssvæði verði samþykkt.

 

Dagskrá aðalfundar er:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar, staðfestir af skoðunarmönnum, lagðir fram til samþykktar
4. Samþykktir félagsins
5. Kosning formanns
6. Kosning stjórnar – 6 aðalmenn og 2 varamenn
7. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
8. Ákvörðun félagsgjalda
9. Önnur mál

 

Framboð til stjórnar og formanns Viðreisnar á Suðurnesjum (með fyrirvara um breytingu á samþykktum) verða að hafa borist minnst 7 dögum fyrir aðalfund eða þann 20. maí 2025 með netpósti á netfangið sudurnes@vidreisn.is

 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á fundinum.
Stjórn Viðreisnar í Reykjanesbæ