20 okt Árborg: Kosið í uppstillinganefnd
Stjórn Viðreisnar í Árnessýslu boðar hér með til félagsfundar fimmtudaginn 20. október kl. 20:00 í húsnæði Krabbameinsfélags Árnessýslu, Eyravegi 31, Selfossi.
Dagskrá fundarins:
- Kosning fundarstjóra og ritara
- Kosning í uppstillinganefnd vegna sveitarstjórnarkosninga og framboðs í Árborg.
- Önnur mál.
Allir félagar í Viðreisn í Árnessýslu eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í undirbúningi komandi kosninga. Tilkynningar um framboð í uppstillinganefnd skal senda á arnessysla@vidreisn.is.
Virðingarfyllst, Stjórn Viðreisnar í Árnessýslu