07 okt Félagsfundur í Garðabæ – ákvörðun um fyrirkomulag framboðslista
Viðreisn í Garðabæ boðar til félagsfundar þar sem tekin verður ákvörðun um hvaða leið verður farin við samsetningu framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Á fundinum verður rætt hvort beita eigi uppstillingu eða prófkjöri og atkvæði greidd um málið.
Tvær leiðir koma til greina:
Uppstilling: Kosin er uppstillingarnefnd sem vinnur tillögu að framboðslista sem síðan er borin undir félagsfund til samþykktar.
Prófkjör: Félagar geta boðið sig fram í ákveðin sæti og niðurstaðan byggir á atkvæðum félagsmanna.
Fundurinn verður haldinn:
Þriðjudaginn 7. október 2025 kl. 17:00 í Sveinatungu, Garðabæ.
Við hvetjum alla félaga til að mæta og taka þátt í þessari mikilvægu ákvörðun um næstu skref í starfi Viðreisnar í Garðabæ.
Þriðjudaginn 7. október 2025 kl. 17:00 í Sveinatungu, Garðabæ.
Við hvetjum alla félaga til að mæta og taka þátt í þessari mikilvægu ákvörðun um næstu skref í starfi Viðreisnar í Garðabæ.