23 okt Framboðslisti Norðvesturráðs til samþykktar
Norðvesturráð boðar til fundar á miðvikudaginn 23. október kl. 18.00, þar sem tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista verður borin undir landshlutaráð til samþykktar eða synjunar.
Sé tillögu uppstillingarnefndar synjað af landshlutaráði ber að endurtaka uppstillingu. Einungis er hægt að kjósa um listann í heild sinni en ekki ákveðin sæti.
Seturétt á fundinum eiga þeir félagsmenn Viðreisnar sem lögheimili eiga í Norðvesturkjördæmi.