28 nóv Fullveldisgleði Viðreisnar í Reykjavík
Viðreisn í Reykjavík býður til fullveldisgleði 
Föstudagskvöldið 28. nóvember hittumst við á Petersen svítunni kl. 20.00 til að fagna fullveldinu – og framtíðinni! Við ætlum að skála, spjalla og líklega hlæja ófáum sinnum, en umfram allt njóta kvöldsins í góðum félagsskap með okkar besta fólki.

Þetta kvöld markar upphafið að spennandi kosningaári í borginni og er fullkomið tækifæri til að sameinast, styrkja tengslin og kveikja eldmóð fyrir því sem framundan er.
Hvort sem þú ert gamall félagi eða forvitinn nýliði – komdu og vertu með! Við lofum hlýjum móttökum, góðu spjalli og frábærri stemningu.
Það verða tilboð á barnum og aldrei að vita hvort að míkan verði munduð af góðu fólki.
Við hlökkum til að sjá sem flest! 