10 jan Kaffispjall um sveitarstjórnarkosningar 2026
Það styttist í sveitarstjórnarkosningarnar í vor og undirbúningurinn er að hefjast.
Laugardaginn 10. janúar kl. 10:30–13:00 bjóðum við til kaffi- og samtalsfundar á skrifstofu Viðreisnar við Suðurlandsbraut, þar sem við komum okkur saman í gírinn fyrir komandi kosningar.
Þorgerður Katrín setur fundinn og opnar dagskrána. Í kjölfarið verður skipt í hópa þar sem rætt verður um áherslur og undirbúning kosningabaráttunnar. Meðal annars munum við velta fyrir okkur hvernig við tryggjum jákvæða, uppbyggilega og samstillta stemningu í aðdragandanum.
Öll eru hjartanlega velkomin, meðan húsrúm leyfir.
Fjarfundahlekkur er: https://meet.google.com/myu-fgjo-ogx