17 feb Netverslun með áfengi: Framgangur frelsis eða ógn við lýðheilsu?
Undanfarin ár hefur ríkt óvissa á íslenskum áfengismarkaði. Einkareknar vínbúðir hafa hafið starfsemi í skjóli EES, á meðan ríkiseinokun stendur enn, og lagaleg staða slíks reksturs hefur verið umdeild.
Af því tilefni boðar Viðreisn til opins fundar þar sem málið verður rætt frá ólíkum sjónarhornum.
Rætt verður:
- Frumvarpsdrög Gríms Grímssonar um breytingar á áfengislöggjöf sem snúa að netverslun með áfengi
- Afstöðu grasrótar Viðreisnar til einkasölu ríkisins.
- Sjónarmið hagaðila – netverslana, forvarnaraðila og meðferðarúrræða.
- Jafnvægi frelsis, samkeppni og lýðheilsu.
Gestir okkar verða:
- Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar
- Arnar Sigurðsson, eigandi Santé!
- Hōrður J. Oddfríðarson, Áfengis- og vímuefnaráðgjafi, verkefnastjóri hjá SÁÁ
- Guðmundur Örn Jóhannsson, verkefnastjórn hjá Krýsuvíkursamtökunum og stjórnarmaður SÁÁ
- Sverrir Páll Einarsson, forseti Uppreisnar
Jóhanna Pálsdóttir, fulltrúi málefnaráðs mun opna fundinn og stýra umræðum með Bjarka Fjalari Guðjónssyni, fulltrúa málefnaráðs.
Verið velkomin að ræða stöðu netverslunar með áfengi.
Hlekkur á fjarfund: https://meet.google.com/rfz-mbos-qnf