Norðausturráð fundar um val við röðun á lista

Norðausturráð fundar um val við röðun á lista

Hvenær

17/10    
19:00 - 20:00

Hvar

Kæru félagsmenn í Norðausturráði Viðreisnar
Skjótt skipast veður í lofti. Vegna tilkynningar forsætisráðherra um að óska eftir þingrofi og stefna að kosningum 30. nóvember þá þurfum við hafa hraðar hendur á við að skipa á lista fyrir komandi kosningar.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 17. október kl. 19.00 og verður rafrænn.
Stjórn Viðreisnar samþykkti í dag að breyta frestum samkvæmt samþykktum okkar til að auðvelda okkur þessa ákvörðun. Við munum því á fundi okkar taka ákvörðun um hvort við stefnum að prófkjöri eða uppstillingu og ákveða hveru mörg sæti verður kosið um ef við veljum prófkjör.
Einnig þurfum við á fundinum að kjósa uppstillinganefnd og ef þarf, kjörstjórn. Við óskum því eftir framboðum í þessar tvær nefndir (ef þarf), sem manna skal af þremur einstaklingum hvor. Ef þú vilt vera með, þá skaltu senda póst á nordaustur@vidreisn.is láta okkur vita.
Ef ekki berast næg framboð fyrir aðalfundinn, né á fundinum sjálfum mun ný stjórn óska eftir heimild til að skipa þá einstaklinga sem þarf í uppstillinganefnd og ef þarf, í kjörstjórn.
Dagskrá fundar
1. Val um leið við röðun á lista Norðausturkjördæmi
2. Kosning uppstillingarnefndar
3. Kosning kjörstjórnar(ef þarf)
Með bestu kveðju,
Stjórn Norðausturráðs Viðreisnar