Opið samtal um næstu skref í Reykjavík

Opið samtal um næstu skref í Reykjavík

Hvenær

01/10    
20:00

Hvar

Viðreisn
Suðurlandsbraut 22, 5. hæð Gengið inn að aftan, Reykjavík, 108

Event Type

Kæru Reykvíkingar,

Nú fer að líða að því að stjórn Viðreisnar í Reykjavík leggi fram tillögu sína um leið við val á framboðslista.
Áður en við gerum það viljum við heyra í ykkur!

Þann 1.október klukkan 20:00 ætlum við að bjóða í opið samtal um leiðir við val á framboðslista. Það verður farið yfir greiningu stjórnar á kostum og göllum hverjar leiðar fyrir sig og fylgjum við því eftir með öflugri umræðu með ykkur um hvaða leið þið viljið fara. Við tökum svo þá umræðu og fullmótum tillögu sem verður svo lögð fyrir félagsfund sem boðaður verður síðar. Markmið okkar í stjórn er að móta tillögu sem byggða er á samtali og samvinnu fólks í flokknum.

Fundurinn fer fram á skrifstofu Viðreisnar miðvikudaginn 1.okt klukkan 20:00

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest

Kær kveðja,
Natan Kolbeinsson
Formaður Viðreisnar í Reykjavík