Tölum saman um skipulags- og samgöngumál í Hafnarfirði!

Tölum saman um skipulags- og samgöngumál í Hafnarfirði!

Hvenær

10/02    
20:00

Event Type

Viðreisn í Hafnarfirði blæs til fundarraðarinnar „Tölum saman um…“ þar sem við viljum eiga milliliðalaust samtal við íbúa um framtíð bæjarins.
Fyrsti fundurinn er þriðjudaginn 10. febrúar og þar tökum við fyrir skipulags- og samgöngumál. Við fáum góða gesti til að opna umræðuna, en svo er orðið laust. Tússtaflan góða verður á svæðinu og við viljum heyra þínar hugmyndir fyrir komandi kosningar!
Gestir kvöldsins verða:
– Sigurjón Ingvason, fulltrúi Viðreisnar í skipulags- og byggingarráði: Vönduð vinnubrögð í skipulagsmálum og sóun.
– Hilmar Freyr Gunnarsson, húsasmíðameistari og byggingatæknifræðingur: Að byggja sér hús í Hafnarfirði – hvað má gera betur?
– Borghildur Sverrisdóttir, arkitekt: Hugleiðingar Hafnfirðings um þróun bæjarins.
– Lilja G. Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur og skipulagsráðgjafi: Samgöngumál í Hafnarfirði til framtíðar.
Allir Hafnfirðingar eru hvattir til að mæta, taka þátt í spjallinu og hafa áhrif á áherslur okkar.
Staðsetning: Salur Kiwanis, Helluhrauni 22
Tími: Þriðjudaginn 10. febrúar kl. 20:00
(Ath. fundirnir verða alls fimm talsins, alltaf á þriðjudögum kl. 20. Næstu efni eru skólamál, velferðarmál, umhverfismál og stjórnsýsla).