Við erum í ríkisstjórn. Hvað nú?

Við erum í ríkisstjórn. Hvað nú?

Hvenær

10/05    
11:00 - 14:00

Bookings

Bookings closed

Hvar

Smiðja, Alþingishús
Við Tjarnargötu, Reykjavík, 101

Kæru félagar,

Viðreisn er komin í ríkisstjórn – og nú þurfum við öll að leggja okkar af mörkum. Í þessari vinnustofu fá félagsmenn tækifæri til að skiptast á hugmyndum og móta leiðir til að styðja lykilmál flokksins í framkvæmd.

  • Hvernig getur grasrótin haft áhrif á opinbera umræðu og stjórnmál?
  • Hvaða tól og aðferðir höfum við til að styðja þingmenn og ráðherra?
  • Hvernig verður rödd okkar sýnileg og áhrifarík?

Við ræðum lykilmál flokksins í ríkisstjórn og skoðum hvernig við sem félagsfólk getum tekið þátt – ekki bara á kjördag, heldur alla daga. Með samstöðu, virku samtali og aðgerðum styrkjum við málstaðinn og mótum framtíðina saman.

Taktu þátt – því við erum í ríkisstjórn og þú ert hluti af því.

Við hittumst í Smiðju, húsnæði Alþingis og tökum okkur góðan tíma að þessu sinni. Vegna öryggisgæslu þingsins eru takmörkuð pláss í boði og aðeins skráðir þátttakendur komast að. Boðið verður upp á léttan hádegismat. Húsið opnar klukkan 10:30 og við hefjumst handa klukkan 11:00.

Fullbókað er á viðburðinn, ef þú vilt skrá þig á biðlista getur þú sent okkur póst á vidreisn@vidreisn.is 

Bookings

This event is fully booked.