Fötluð ungmenni og tækifærin

Væntingarnar

Undanfarin misseri hefur sannarlega verið tilefni til að fyllast bjartsýni um að okkur ætli að takast að rétta af óréttlætið sem fötluð ungmenni eru beitt endurtekið ár eftir ár.

Háskólaráðherra hefur talað hátt og skýrt fyrir bættum tækifærum fatlaðs fólks til menntunar og velsæld er sett í forgang í störfum menntamálaráðherra.

Velsæld allra og bætt aðgengi að námi fyrir öll hefur verið mantran sem mörg voru farin að leyfa sér að treysta.

Allt er þetta hvetjandi og peppandi fyrir okkur sem störfum við það alla daga að standa vörð um réttindi fatlaðs fólks. En ekki síður er hið svo kallaða pepp að ná til fötluðu ungmennanna sem eyja von í hjarta um að nú þurfi ekkert að óttast því öll fái loksins tækifæri sem vilja til að velja sér framhaldsskóla eða velja að halda áfram að mennta sig að honum loknum innan Háskóla Íslands sem hingað til hefur verið settar þær skorður að þurfa að velja og hafna úr þó fámennum hópi umsækjenda sem stíga það skref að ætla að sækja sér frekari menntun.

Og svo kom vorið
og vonbrigðin

Í kringum 40 ungmenni voru sett í þá stöðu að fá svarið við skólavist í framhaldsskóla þetta vorið að því miður væri ekki hægt að verða við óskum um val 1 né val 2 um skóla.

Því miður var ekki gert ráð fyrir þér innan menntakerfisins okkar sem lögum samkvæmt skal vera fyrir öll.

Tugir ungmenna fengu ekkert val og bíða enn úrlausna sinna mála þrátt fyrir að þeim sé gert að sækja um mikið fyrr en önnur ungmenni að maður skyldi ætla til þess að tryggja skólavist í tíma.

16 ungmenni sóttu um starfstengt diplómanám sem Háskóli Ísland býður fötluðum ungmennum með þroskaskerðingar upp á.

Allt tal ráðherra háskólanna bauð á endanum upp á tækifæri fyrir 8 ungmenni í það eftirsótta og eina nám sem í boði er á háskólastigi fyrir fatlað fólk með þroskaskerðingar.

8 ungmenni sitja eftir með sárt ennið með brostnar vonir og úrræðaleysi kerfisins í fanginu.

Tækifærin þetta árið voru ekki þeirra.

Á sama tíma og öll önnur ungmenni hafa valið og endalaus tækifæri til að sækja sér menntun eru skilaboðin til þeirra sem sitja eftir einfaldlega að ekki þótti mikilvægt að fjárfesta, eins og það er kallað, í þeirra framtíð.

Greinin birtist fyrst á Vísi 21. júní 2023