Gylfi Þór Þorsteinsson er reynslumikill stjórnandi og verkefnastjóri með víðtæka reynslu af krísustjórnun og umfangsmiklum samfélagsverkefnum. Hann er sviðstjóri hjá Rauða krossinum en einnig hefur hann gegnt lykilhlutverkum í viðbrögðum við stórum áskorunum á Íslandi, meðal annars stýrt farsóttarhúsum Rauða krossins í COVID-19 faraldrinum, leitt móttöku flóttafólks frá Úkraínu í samstarfi við stjórnvöld og komið að samhæfingu aðgerða fyrir Grindavík í kjölfar jarðhræringa. Þá hefur hann einnig reynslu úr prent- netmiðlum og í útvarpi. Gylfi býður sig fram til að nýta þessa víðtæku reynslu til að styðja við ábyrga og markvissa uppbyggingu Mosfellsbæjar, með áherslu á öryggi, velferð og að vöxtur bæjarins bæti lífsgæði íbúa.
Valdimar Birgisson er varaþingmaður, vara bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar í Mosfellsbæ, með víðtæka reynslu af stjórnmálum og sveitarstjórnarmálum. Með þeirri reynslu hefur hann öðlast góða innsýn í fjármál, skipulagsmál og velferðarþjónustu bæjarins. Valdimar býður sig fram með áherslu á ábyrga fjármálastjórn, markvissa húsnæðisuppbyggingu og öfluga velferðarþjónustu, auk þess að tryggja að stjórnsýsla bæjarins sé hvetjandi og þjónandi fyrir íbúa.
Elín Anna Gísladóttir hefur víðtæka reynslu af stjórnun og samfélagsmálum, meðal annars sem deildarstjóri og leiðtogi menningarbreytinga hjá Avians, auk þess að sitja í stjórn Viðreisnar. Hún hefur einnig tekið virkan þátt í félagsstarfi og öðlast góða innsýn í málefni sveitarfélagsins. Elín býður sig fram með það að markmiði að byggja áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið á undanförnum árum, með áherslu á ábyrga og framsýna ákvarðanatöku þar sem almannahagsmunir eru hafðir að leiðarljósi og Mosfellsbær þróast áfram sem öflugt og samheldið samfélag.
Berglind Robertson Grétarsdóttir er leikskólastjóri Sumarhúsa og býr yfir víðtækri reynslu af starfi með börnum og fjölskyldum. Í starfi sínu hefur hún lagt áherslu á velferð, öryggi og uppbyggilegt umhverfi fyrir yngstu íbúa samfélagsins. Berglind býður sig fram með skýra sýn á mikilvægi þess að styðja við börn og fjölskyldur, og vill leggja sitt af mörkum til að efla Mosfellsbæ sem öruggt, hlýlegt og fjölskylduvænt samfélag með öfluga þjónustu.
Haukur Skúlason er frumkvöðull og einn af stofnendum indó, þar sem hann hefur komið að uppbyggingu nýrrar og gagnsærri nálgunar í fjármálaþjónustu. Hann býr yfir víðtækri reynslu úr fjármálageiranum og hefur sterkan skilning á rekstri, stefnumótun og ábyrgri ákvarðanatöku. Haukur býður sig fram til að leggja sitt af mörkum til uppbyggingar Mosfellsbæjar, með áherslu á að stýra vexti bæjarins af ábyrgð, meðal annars á Blikastaðalandi, þannig að varðveittur verði bæjarbragur á sama tíma og ný hverfi fá að þróast og blómstra.
Guðrún Þórarinsdóttir hefur góða innsýn í málefni sveitarfélagsins og hefur öðlast reynslu af starfi Viðreisnar og félagsstarfi sem nýtist við að vinna að sameiginlegum markmiðum. Hún leggur áherslu á góð samskipti, sanngirni og samvinnu í allri ákvarðanatöku. Guðrún býður sig fram til að leggja krafta sína í þágu bæjarbúa, með það að markmiði að stuðla að ábyrgum og skynsamlegum lausnum þar sem manngildi eru höfð að leiðarljósi.
7. Birgir Örn Birgisson lögfræðingur
8. Erla Björk Gísladóttir, MSc í mannauðsstjórnun og B.S. í ferðamálafræði
9. Óðinn Freyr Baldursson kvikmyndaframleiðandi
10. Valgerður Lilja Jónsdóttir gæðastjóri
11. Sigurður Unnar Ragnarsson, stuðningsfulltrúi og aðstoðarmaður kennara í FMOS
12. Hera Björk Þórhallsdóttir, löggiltur fasteignasali og söngkona
13. Kjartan Jóhannes Hauksson, nemi í viðskiptafræði
14. Hildur Björg Bæringsdóttir, viðskiptafræðingur og kennari
15. Magnús Sverrir Kristófersson, smiður og sölumaður fasteigna á Tenerife
16. Eyja Eydal Björnsdóttir, teymisstjóri í sértækri búsetu
17. Reynir Matthíasson framkvæmdastjóri
18. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir viðskiptafræðingur
19. Helgi Pálsson framkvæmdastjóri
20. Ólöf Guðmundsdóttir, kennari í Varmárskóla
21. Bolli Valgarðsson, ráðgjafi
22. Lovísa Jónsdóttir, lögfræðingur og fráfarandi oddviti