Félög, ráð og nefndir

Svæðafélög

Akureyri

Akureyri

Garðabær

Garðabær

Hafnarfjörður

Hafnarfjörður

Kópavogur

Kópavogur

Mosfellsbær

Mosfellsbær

Reykjanesbær

Reykjanesbær

Reykjavík

Reykjavík

Rangárþing

Rangárþing

Seltjarnarnes

Seltjarnarnes

Ungliðar

Uppreisn: Ungliðahreyfing

Uppreisn: Ungliðahreyfing

Uppreisn í Reykjavík

Uppreisn í Reykjavík

Landshlutaráð

 

Landshlutaráð halda uppi félagsstarfi og fjalla um málefni síns landshluta og önnur verkefni, samkvæmt samþykktum starfs- og skipulagsreglum landshlutaráða Viðreisnar.  Landshlutaráðin eru fimm, eitt í hverju kjördæmi nema fyrir Reykjavíkurkjördæmin tvö er eitt ráð.

Reykjavíkurráð

 

Stjórn Reykjavíkurráðs skipar:  Natan Kolbeinsson formaður, Árni Grétar Jóhannsson, Emma Ósk Ragnarsdóttir, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Samúel Torfi Pétursson, Sunna Kristín Hilmarsdóttir, Bjarni Þór Pétursson varamaður og Erlingur Sigvaldason varamaður. Netfang ráðsins er reykjavik@vidreisn.is

Suðurráð

 

Stjórn Suðurráðs skipar Arnar Páll Guðmundsson, formaður, Ingunn Guðmundsdóttir, Skúli Skúlason, Sigurður Steinar Ásgeirsson og Jasmina Vajzović Crnac. Netfang ráðsins er: sudur@vidreisn.is

Norðausturráð

 

Stjórn Norðausturráðs skipar: Heiða Ingimarsdóttir formaður, Hafsteinn Árnason, Jens Hilmarsson, Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir og Rut Jónsdóttir. Netfang ráðsins er nordaustur@vidreisn.is.

Norðvesturráð

 

Stjórn Norðvesturráðs skipar:  Magnús Þór Jónsson gjaldkeri, Ingunn Rós Kristjánsdóttir og Jóhannes Finnur Halldórsson. Netfang ráðsins er: nordvestur@vidreisn.is

Suðvesturráð

 

Stjórn  Suðvesturráðs skipar Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir formaður, Heiðrún Sigurðardóttir, Guðrún Þórarinsdóttir, Þröstur V. Söring og Gunnar Karl Guðmundsson  Netfang ráðsins er sudvestur@vidreisn.is

Málefnaráð

 

Málefnaráð hefur það hlutverk að leiða stefnumótun og afmörkun einstakra mála og málaflokka á landsvísu. Tilgangur málefnaráðs er að halda utan um og efla grasrótarstarf, vinna úr tillögum félaga og móta áyktanir þess efnis fyrir landsþing. Málefnaráð skal gæta hlutleysis við mat á mismunandi skoðunum og leita leiða við að samhæfa álit félaga.

 

Málefnaráð er skipað sex fulltrúum og tveim varamönnum, kjörnum á landsþingi og varaformanni flokksins, sem skal vera formaður málefnaráðs.

 

Málefnaráð skipa: Daði Már Kristófersson formaður, Oddný Arnarsdóttir, varaformaður, Lilja G. Karlsdóttir ritari, Pawel Bartoszek, fulltrúi málefnaráðs í stjórn, Eyþór Eðvarðsson, Friðrik Sigurðsson, Hildur Betty Kristjánsdóttir, Máni Þór Magnason varamaður og Þröstur Söring varamaður.

Sveitarstjórnarráð

 

Sveitarstjórnarráð er samstarfsvettvangur fulltrúa Viðreisnar í sveitastjórnum og er Viðreisn til ráðuneytis um sveitarstjórnarmál. Sveitarstjórnarráð fjallar um sameiginlega stefnumótun í málefnum sveitarfélaga í samræmi við stefnu Viðreisnar. Sveitarstjórnarráð er skipað öllum aðal- og varafulltrúum í sveitarstjórnum auk þeirra sem eiga sæti í nefndum sveitastjórna sem eru flokksbundnir í Viðreisn, framkvæmdastjóri flokksins, og starfsmaður Sveitarstjórnarráðs. Sveitarstjórnarráð kýs sér stjórn á 2ja ára fresti, mótar starfsreglur og skipuleggur störf sín.

 

Stjórn sveitarstjórnarráðs skipar Axel Sigurðsson formaður, Jón Ingi Hákonarson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Karólína Helga Símonardóttir og Lovísa Jónsdóttir.

Öldungaráð

 

Öldungaráð Viðreisnar skal sinna málefnastarfi eldra fólks og vera málsvari þeirra í innra starfi flokksins.

 

Stjórn öldungaráðsins skipar Sverrir Kaaber formaður, Lilja Hilmarsdóttir varaformaður, Páll Á. Jónsson ritari, Ásgrímur Jónasson og Hákon Guðmundsson.

ReisVið

 

ReisVið er hinsegin félag Viðreisnar, stofnað í karíókíherbergi Rokksafns Íslands í Reykjanesbæ þegar landsþing Viðreisnar var haldið þar 2018. Allir félagsmenn Viðreisnar og áhugasamt hinsegin fólk um stjórnmál eru velkomnir á félagsfundi ReisVið. Reynt er að halda alla fundi á nýjum stað hverju sinni og við leggjum okkur fram við að snúa dagskránni á hvolf. Á meðan félagið er vakandi yfir réttindum hinsegin fólks hérlendis og erlendis telja félagsmenn það ekki eftir sér að tryggja að innan Viðreisnar sé gleðistuðullinn af ákveðnum gæðum. Í Facebook hóp félagsins er hægt að fylgjast með næstu fundum og uppákomum félagsins,

 

Stjórn ReisVið skipar Guðlaugur Kristmundsson formaður, María Rut Kristinsdóttir og Kjartan Þór Ingason.

Laganefnd

 

Stjórn Viðreisnar skipar þrjá í Laganefnd eftir hvert landsþing, formann og tvo nefndarmenn. Laganefnd leysir úr ágreiningi sem kann að koma upp um túlkun samþykkta á vegum flokksins og veitir ráðgjöf um önnur lögfræðileg álitamál.