Viðreisn á Akranesi setur börn og fjölskyldur í forgrunn og byggir allar ákvarðanir á ábyrgri fjármálastjórn, gagnsæi og gæðum í þjónustu bæjarins. Við komum með ferskan blæ í bæjarmálin með nýja nálgun á gömul vandamál. Við ætlum að framkvæma og við þorum að taka ákvarðanir.
Jón Guðni Guðmundsson var kjörinn í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar 16. maí 2026 með 10,7% atkvæða. Jón Guðni er fyrsti kjörni fulltrúi Viðreisnar á Akranesi.
Hámarksframlög einstaklinga og fyrirtækja eru 550.000 kr. Öll framlög fyrirtækja verða gefin upp í ársreikningi Viðreisnar. Einnig framlög einstaklinga sem eru 300.000 kr og hærri.