Viðreisn í Garðabæ setur börn og barnafjölskyldur í forgang með öflugum skólum og frístundastarfi, snemmtækum stuðningi og kerfum sem vinna saman. Sterk byrjun fyrir börnin er besta fjárfesting sem samfélag getur gert.
Við leggjum ríka áherslu á rými fyrir menningu og samfélag: lifandi bæjarlíf, samkomustaði og viðburði þar sem fólk hittist, skapar og nýtur samveru. Menning og mannlíf bæta ekki aðeins bæinn, þau styrkja fólkið sem býr í Garðabæ. Það besta sem við getum gert til þess að koma í veg fyrir einmanaleika og styðja við fjölbreytt samfélag er skapa rými til samveru.
Á sama tíma erum við með skýra sýn í ábyrgri fjármálastjórn. Við viljum minnka báknið og tryggja að fólk sem er að greiða fyrir stjórnsýsluna sé að fá sem mest fyrir skattpeninginn! Það gerum við ekki með því að draga of marga saman í of margar nefndir sem eru með lítið eða illa skilgreint ákvarðanavald en kostar starfsfólk og Garðabæ bæði tíma og peninga. Við viljum auka skilvirkni beint í þágu íbúa til að verja eða bæta þjónustuna
Þessi stefna byggir á kjarki til breytinga og skýrum aðgerðum.
Garðabær skal vera í forystu með að þjónusta fjölskyldur með öflugri grunnþjónustu, snemmtækan stuðning og kerfi sem vinna saman.
Við leggjum áherslu á örugga og trausta leikskólaþjónustu sem styður við fjölskyldur og atvinnuþátttöku foreldra. Við viljum sjá skóla Garðabæjar aftur í forystu í kennslumálum og við beitum aðferðum í kennslu og mat á henni sem víðtæk sátt er um. Börn eiga að fá stuðning snemma, og því viljum við tryggja snemmtækan og samfelldan stuðning við börn með ólíkar þarfir. Sálfræðingar og annað fagfólk eiga að vera hluti af daglegu skólastarfi, með aukinni áherslu á talmeinaþjónustu og stoðþjónustu. Jafnframt leggjum við áherslu á að styrkja kennara og annað starfsfólk, með betri starfsskilyrðum, faglegum stuðningi og raunhæfum lausnum. Þar leggjum við áherslu á aukið samtal við fagfólk skólanna.
Foreldrum á að vera auðveldara að samræma fjölskyldulíf, skóla og tómstundir, með einfaldari og notendavænni lausnum í þjónustu sveitarfélagsins.
Góðar frístundir eru forvarnir og lykill að vellíðan, félagsfærni og virkri þátttöku í samfélaginu. Við viljum tryggja sumarfrístund fyrir öll börn, óháð bakgrunni eða efnahag, lengja opnunartíma sundlauga með þarfir barnafjölskyldna og ungmenna í huga og byggja upp skemmtilegri, fjölbreyttari og lifandi leiksvæði í hverfum. Þá viljum við bæta aðstöðu fyrir ungmenni í hverfunum til að styrkja nærumhverfi ungmenna og bæta aðgengi að félagslegu rými. Einnig viljum við bjóða upp á félagsmiðstöðvar fyrir yngri börn, með áherslu á leik, samveru og forvarnir, þannig að öll börn hafi rými til að þroskast, tilheyra og blómstra í nærumhverfi sínu.
Göngum í verkin:
Við viljum skipuleggja Garðabæ þannig að daglegt líf fólks verði einfalt, öruggt og manneskjulegt. Skipulag og samgöngur eiga ekki að vera flókið kerfi heldur tæki til að styðja gott líf. með öruggum leiðum, skýrum tengingum og umhverfi sem hvetur til hreyfingar, samveru og þátttöku. Börn, ungmenni, fjölskyldur og eldri íbúar eiga að komast örugglega og greiðlega milli heimilis, skóla, íþrótta, þjónustu og útivistar.
Við leggjum áherslu á sterkari tengingar milli hverfa og markvissa eflingu göngu-, hjóla- og almenningssamgangna, þannig að fólk hafi valkosti í daglegu lífi. Skipulag Garðabæjar á að snúast um lífsgæði og samfélag.
Uppbygging hverfa og innviða á að byggja á pólitískri forgangsröðun og lýðræðislegri sýn, en ekki fyrst og fremst á tímasetningum eða hagsmunum verktaka. Kjörnir fulltrúar bera ábyrgð á að móta framtíð bæjarins út frá heildarhagsmunum íbúa, og skipulag er eitt mikilvægasta stjórntæki sveitarfélags til að byggja samfélag sem sameinar fólk og styður gott daglegt líf til lengri tíma.
Til þess að þetta gangi upp þarf einfaldari, gagnsærri og öflugri stjórnsýslu. Ákvarðanir í skipulags- og samgöngumálum eiga að vera skýrar, aðgengilegar og skiljanlegar, með raunverulegu samráði við íbúa snemma í ferlinu. Lýðræði í skipulagsmálum snýst ekki aðeins um formlegt samráð, heldur um að fólk hafi raunveruleg áhrif á þróun hverfa sinna og upplifi að Garðabær sé skipulagður fyrir fólk – ekki kerfi. Með skýrri pólitískri forystu í skipulagsmálum og öflugum tengingum höldum við áfram að byggja upp Garðabæ sem er öruggur, lifandi og samheldinn. Bær þar sem daglegt líf gengur upp og samfélagið styrkist.
Menning er órjúfanlegur hluti af lífsgæðum og sterku samfélagi. Lifandi menningarlíf skapar tengsl milli fólks, eykur vellíðan og gerir bæinn að stað sem fólk sækir í, ekki aðeins býr í. Við viljum Garðabæ þar sem menning, sköpun og mannlíf eru sýnileg í daglegu lífi og hluti af uppbyggingu hverfa og miðbæjarsvæða.
Hverfi og almenningsrými eiga að byggjast upp með meiri hlýju, gróðri, mannlífi og samverurýmum, þar sem fólk vill staldra við, hittast og tilheyra. Við setjum það í forgang að skapa rými fyrir menningu í Garðabæ. Þar undir fellur uppbygging almennilegrar aðstöðu fyrir tónlist, sviðslistir, samkomur og samfélags viðburði. Menning á að vera aðgengileg öllum aldurshópum og styðja bæði atvinnuþróun og grasrótarstarf.
Okkar stefna er að efla samstarf við Grósku og skapandi greinar, þannig að tenging menningar, nýsköpunar og atvinnulífs verði markviss og sýnileg. Menning skapar verðmæti, bætir félagsleg, menningarleg og efnahagsleg tengsl. Þetta er skýr hluti af framtíðarsýn Viðreisnar í Garðabæ um fjölbreytt og öflugt samfélag.
Garðatorgi þarf að breyta í lifandi bæjartorg ekki aðeins rými sem fólk fer í gegn um, heldur staður þar sem fólk dvelur, mætist og upplifir menningu og mannlíf. Markmiðið er skýrt: að byggja skemmtilegri Garðabæ sem er eftirsóknarverður með rýmum til samveru.
Göngum í verkin:
Stefna Viðreisnar í Garðabæ einkennist af ábyrgð, skynsemi og með skýrri forgangsröðun. Þar sem virðing er borin fyrir skattfé bæjarbúa og þjónustan miðar fyrst og fremst að fólkinu sem hér býr. Traust rekstrarumhverfi byggist á gagnsæi, ábyrgð og skilvirkni en ekki flóknu kerfi þar sem ábyrgð dreifist og ákvarðanir dragast.
Við leggjum ríka áherslu á að minnka báknið og einfalda stjórnsýslu, þannig að sveitarfélagið einbeiti sér að kjarna hlutverkum sínum. Færri nefndir, skýrari ábyrgð og skilvirkari ákvarðanataka gera stjórnsýsluna markvissari og auka traust íbúa á því að ákvarðanir séu teknar af festu og fagmennsku. Pólitísk ábyrgð þarf að vera skýr og stjórnsýslan að styðja við hana.
Endurskoða þarf launakjör bæjarstjóra, í samhengi við ábyrgð, árangur og samanburð við önnur sveitarfélög. Slík endurskoðun er hluti af heildstæðri sýn á ábyrgð og jafnræði í rekstri bæjarins. Hagræðing á ekki að bitna einhliða á starfsfólki sveitarfélagsins, heldur á að byggjast á faglegum hagræðingatillögum, unnum með svipuðum hætti og í atvinnulífinu, þar sem verklag, ferlar og skipulag eru skoðuð í heild sinni.
Markmiðið er einföld, stafræn og aðgengileg þjónusta fyrir íbúa, þar sem samskipti við sveitarfélagið eru skýr, fljótleg og notendavæn. Með betri nýtingu fjármuna, einfaldari stjórnsýslu og skýrari forgangsröðun getur Garðabær skapað svigrúm til bættrar þjónustu og lægri álaga þegar rekstur leyfir. Ábyrg fjármálastjórn er ekki markmið í sjálfu sér. Hún er forsenda betri lífsgæða fyrir öll sem búa í Garðabæ.
Göngum í verkin:
Við viljum að Garðabær sé aldursvænn og framsækinn bær, þar sem gaman er að eldast og fólk nýtur lífsgæða, virðingar og raunverulegs vals. Hópur fólks sem er að eldast í Garðabæ er sífellt fjölbreyttari og því þurfum við fjölbreyttar leiðir til að mæta ólíkum þörfum, óskum og lífsstíl.
Við leggjum áherslu á aðgengilegt og öruggt umhverfi, góðar tengingar, samgöngur og almenningsrými sem gera fólki kleift að taka virkan þátt í daglegu lífi eins lengi og mögulegt er. Félagslíf, hreyfing, menning og samvera eru lykilþættir í vellíðan og við viljum styðja við öflugt og fjölbreytt starf sem dregur úr einangrun og styrkir tengsl.
Þjónusta við eldra fólk á að vera einstaklingsmiðuð, samhæfð og auðskiljanleg, með áherslu á heimaþjónustu, heimahjúkrun og nýjar lausnir sem styðja sjálfstætt líf. Markmiðið er skýrt: að Garðabær sé bær þar sem gaman er að vera gamall, þar sem fólk finnur að það tilheyri samfélaginu og hafi tækifæri til að lifa virku og innihaldsríku lífi á eigin forsendum.
Göngum í verkin: