Börn og ungmenni eru í forgrunni. Við munum byggja upp Múlaþing þar sem tækifærin eru jöfn, óháð búsetu. Í því felst að styrkja tómstunda-, frístunda- og íþróttastarf, ásamt því að tryggja betri geðheilbrigðisþjónustu á öllum skólastigum. Þegar við styðjum betur við börnin okkar, skilar það sér í bættu samfélagi fyrir okkur öll.
Stefnan byggir á fagmennsku, ábyrgum rekstri og auknum gæðum í allri þjónustu Múlaþings.
Lífsgæði íbúa eru höfð að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku. jöfnun tækifæra allra íbúa er samþætt allri grunnþjónustu, svo sem menntun, félagsþjónustu, þjónustu við eldri íbúa, frístundarstarfi, samgöngum og umhverfismálum.
Múlaþing er mikilvægt efnahagssvæði og við eigum tilkall til sanngjarnar hlutdeildar í þeim verðmætum sem hér verða til, við munum beita okkur af festu fyrir því að ríkisstjórnin skili fjármunum til baka inn í okkar landshluta.
Austurlistinn og Viðreisn munu móta Múlaþing sem:
Við munum byggja upp fjölskylduvænt samfélag. Þetta gerum við með því að jafna tækifæri barna með heildstæðum stuðningi án hindrana og góðri geðheilbrigðisþjónustu á öllum skólastigum. Öll börn eiga að geta fundið sér frístundastarf við sitt hæfi, sama hvort það er í íþróttum, skipulögðu félagsstarfi, eða einhverju allt öðru.
Við vitum að velferðarþjónusta sem tryggir öryggi og virkni íbúa á öllum æviskeiðum er forsenda þess að Múlaþing sé heimili fólks fyrir lífstíð. Okkar megináhersla er að brúa bilið milli þess stuðnings sem þörf er á í dag og þeirra krafna sem framtíðin gerir. Fjölgun sérfræðinga á borð við þroska- og iðjuþjálfa og efld geðheilbrigðisþjónusta er fjárfesting í velferð íbúa áður en vandinn vex. Með þessu munum við tryggja að íbúar á öllum aldri fá viðeigandi þjónustu á réttum tíma.
Við ætlum að færa fókusinn á þau mál sem heyra undir sveitarstjórnina. Vönduð stjórnsýsla er undirstaða þess að Múlaþing geti veitt íbúum fyrsta flokks þjónustu. Við leggjum áherslu á faglegan og ábyrgan rekstur sveitarfélagsins. Þetta er forsenda þess að sveitarfélagið geti tekist á við áskoranir framtíðarinnar og byggt undir raunverulegan vöxt byggðanna. Nauðsynlegt er að ákvarðanir séu teknar eins nálægt þeim sem þær varða og hægt er. Heimastjórnirnar eru órjúfanlegur hluti þess að færa lýðræðislegt vald nær íbúunum.
Góðar samgöngur eru grundvöllur þess að Múlaþing geti náð lengra. Samgöngumál í Múlaþingi eru af tvennum toga, annars vegar eru það tengingarnar við aðra landshluta, en hins vegar eru það tengingarnar innan sveitarfélagsins. Við munum ráðast í samgönguúrbætur á svæðinu, meðal annars með lagningu göngu- og hjólastíga, öflugri almenningssamgöngum, auknum snjómokstri og bættri gatnalýsingu. Við munum ekki láta okkar eftir liggja við að gæta hagsmuna fjórðungsins gagnvart stjórnvöldum þegar kemur að samgönguáætlun og lífæðinni sem er Egilsstaðaflugvöllur.
Við leggjum áherslu á öfluga skóla sem hlúa að nemendum og undirbúa þá fyrir framtíðina. Við munum styðjast við aðferðir sem hafa verið sannreyndar í verki hjá öðrum sveitarfélögum við að efla úrræði sem standa nemendum og kennurum til boða. Með öflugra skólakerfi munu börnin okkar standa betur að vígi til að sækja sér framhaldsmenntun og snúa svo aftur á heimaslóðir til að taka þátt í uppbyggingunni.
Við stöndum fyrir framsýnni uppbyggingu sem tryggir lífsgæði allra íbúa óháð aldri og búsetu. Það þarf að skapa aðstæður fyrir vöxt til framtíðar. Við munum beita okkur fyrir bættu skipulagi sem mætir þörfum Múlaþings í dag – og til framtíðar. Endurskoðun skipulags með sjálfbærni að leiðarljósi greiðir fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Hækkandi fasteignamat kallar á að álagningarprósentan lækki á móti. Við munum lækka álagninguna.
Við munum byggja undir blómlegt atvinnulíf í Múlaþingi. Sveitarfélagið er öflugt efnahagssvæði sme býr að fjölmörgum tækifærum til sóknar. Bæta þarf rekstrarumhverfi fyrir starfsemi fyrirtækja af öllum stærðum með einföldun regluverks og skilvirkari stjórnsýslu. Við viljum vera aðlaðandi svæði fyrir rekstur sem leiðir af sér störf og afleidd störf.
Við gerum Múlaþing grænna í raunhæfum skrefum og ábyrgri nýtingu á náttúruperlum okkar í þágu íbúa og framtíðarkynslóða.
Við ætlum að byggja upp framsækið og fjölskylduvænt samfélag þar sem fagmennska, ábyrgur rekstur og jöfnun tækifæra er höfð að leiðarljósi í allri þjónustu. Með íbúana í forgrunni og skýra framtíðarsýn munum við efla samfélagið okkar svo það verði öflugur og sjálfbær valkostur fyrir öll. Við bjóðum ykkur með í þá vegferð að skapa betra Múlaþing fyrir okkur öll og komandi kynslóðir. Við viljum meira fyrir Múlaþing.