María Ellen

Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra

Að taka til í bókhaldinu og sýna bara grænu tölurnar er ódýr pólitík sem meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar virðist ætla að keyra á núna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Samhengið virðist engu máli skipta lengur og þjónusta við íbúa fær að versna því það einfaldlega kemur ekki nægilega vel út rekstrarlega séð að sinna henni vel.

En staðreyndirnar tala sínu máli – barnafjölskyldum í Kópavogi hefur fækkað núna í fyrsta sinn í mörg ár – framtíðarútsvarsgreiðendur, sem sækja í úthverfamenninguna og náttúruna, hafa snúið sér að Garðabæ og Hafnarfirði.

Staðreyndin er sú að há leikskólagjöld fæla frá, að láta 70% leikskólaforeldra greiða fyrir 30 tíma gjaldfrjálsa hjá öðrum foreldrum er ekki heillandi hagfræði og fasteignagjöld sem hafa hækkað að raunvirði langt umfram launaþróun nýútskrifaðra er ekki dæmi sem ungt fólk sér fram á að geta látið ganga upp.

Fréttir af verktökum sem hafa greitt fyrir lóðir á uppsprengdu verði og fá svo ekki að byggja þær tegundir íbúða sem þeir vita fyrir víst að markaðurinn er að biðja um fæla einnig frá. Þær íbúðir standa mikið til auðar og svo mikið er víst, að þær hefur ekkert ungt fólk efni á að kaupa. Horft til næstu mánaða mun þetta skipta litlu máli, meirihlutanum til bjargar í þessum kosningum, en þetta verður raunverulegt vandamál þegar einskiptistekjurnar, sem björguðu ársreikningi Kópavogsbæjar í ár, skila sér ekki sem raunveruleg fjárfesting í byggð fyrir íbúa sem geta staðið undir því samfélagi sem við viljum skapa.

Við í Viðreisn í Kópavogi veltum því fyrir okkur hvar raunverulegir hagsmunir sitjandi meirihluta liggja, þar sem við höfum ítrekað séð sérhagsmuni tengdra aðila tekna fram yfir almannahagsmuni íbúa Kópavogs. Nú seinast þegar bæjarstjóri tók að sér að reka menningarhús og auka umferð í verslunarmiðstöð upp við umferðarþyngstu götu landsins í staðinn fyrir að byggja upp menningartengda starfsemi í efri byggðum, eins og lofað hafði verið.

Viðreisn í Kópavogi vill að sveitarfélag sé rekið eins og sveitarfélag, með áherslu á nærþjónustu við íbúa en ekki bókhaldsbrellur sem fela í sér engar raunverulegar fjárfestingar til framtíðar. Að draga úr eftirspurn eftir þjónustu til þess að friðþægja fyrir bókhaldið er skammgóður vermir sem á heima í einkareknum fyrirtækjum – en ekki sveitarfélögum í þjónustu við fólk.

Ábyrg fjármálastjórn liggur nefnilega ekki eingöngu í því að halda fast í aurana og baunirnar – heldur einnig að geta nýta peningana þar sem þeir eru líklegastir til að gefa af sér.