Stefna Viðreisnar í Hafnarfirði
2026-2030

LÍFSGÆÐI – ÁBYRGÐ – FRAMTÍÐARSÝN


Viðreisn í Hafnarfirði setur börn og ungmenni í forgrunn. Allar ákvarðanir, fjárfestingar og stefnumótun taka mið af farsæld barna og réttindum þeirra. Stefnan byggir á fagmennsku, gagnsæi, ábyrgri fjármálastjórn og gæðum í allri þjónustu bæjarins.

 

Viðreisn í Hafnarfirði byggir stefnumótun, þjónustu og ákvarðanatöku á lífsgæðum íbúa. Lýðheilsa er samþætt allri grunnþjónustu bæjarins, svo sem menntun, frístundastarfi, félagsþjónustu, þjónustu við eldra fólk, samgöngum og umhverfismálum. 

 

Markmiðið er að skapa samfélag þar sem íbúar búa við jafnt aðgengi, öryggi, stuðning og tækifæri til virkrar þátttöku. Með forvörnum, snemmtækum stuðningi, heilsueflingu, félagslegri virkni og öruggu umhverfi er unnið markvisst að því að bæta lífsgæði allra íbúa Hafnarfjarðar og styðja farsæld þeirra til framtíðar.

 

Viðreisn vill móta Hafnarfjörð sem:

  • Barnvænt og fjölskylduvænt samfélag.
  • Framsækið og sjálfbært sveitarfélag.
  • Bæ með öfluga grunnþjónustu og sterku velferðarkerfi.
  • Bæ sem tengist, þroskast og þjónustar, með gæðum í fyrirrúmi.
  • Samfélag þar sem íbúar hafa raunveruleg áhrif.

Börn og ungmenni

Viðreisn vill að Hafnarfjörður verði leiðandi barnvænt sveitarfélag á Íslandi, með heildstæðan stuðning án hindrana, jöfn tækifæri og farsæld barna að leiðarljósi.

 

Áherslur

  • Áhrif á börn verði metin í öllum ákvörðunum, í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
  • Samþætt stoðþjónusta leikskóla, grunnskóla og frístunda verði efld og innleidd af festu.
  • Tryggð dagvistun frá lokum fæðingarorlofs og aukinn sveigjanleiki í vistun.
  • Bætt grunnfærni barna, sérstaklega lesskilningur, með markvissum og raunhæfum aðgerðum.
  • Efling forvarna, öryggis og velferðar barna og ungmenna. 
  • Fleiri sérfræðingar í skólum.
  • Stuðningur við heimanám innan skóladags eða frístunda.
  • Frístundastarf og frístundastyrkir sem tryggja jöfn tækifæri allra barna.
  • Strætókort verði niðurgreidd fyrir börn og ungmenni upp að 18 ára aldri.
  • Sett verði á fót staða ungmennaráðgjafa til að efla farsæld barna og stuðla að barnvænu sveitarfélagi.
  • „Hafnarfjörður sem fyrsta heimili“ – ráðgjöf og upplýsingamiðstöð fyrir ungt fólk.
  • Auka stuðning við foreldra með opnun „Foreldralínu“. 

Sterkir skólar og faglegt skólasamfélag

Viðreisn leggur áherslu á öfluga, nútímalega og gæðadrifna skóla sem undirbúa nemendur vel fyrir framtíðina.

 

Áherslur

  • Öruggt og gott starfs- og námsumhverfi með vandaðri hljóðvist, lýsingu og loftgæðum.
  • Styðja við fjölbreyttari leiðir til þess að mæta þörfum nemenda.
  • Markvisst verði unnið að því að að fækka nemendum á hvern kennara til að styrkja einstaklingsmiðaða kennslu og auka gæði menntunar.
  • Kennsla sem byggir á styrkingu sjálfsmyndar nemenda, lífsleikni, skapandi hugsun og stafrænum hæfniþáttum.
  • Auka samstarf á milli skóla til að geta boðið upp á fjölbreytt nám.
  • Styðja við starfsfólk skólanna með auknum sveigjanleika í starfi.
  • Sameiginleg framtíðarsýn og skýr aðgerðaráætlun um umbætur í leik- og grunnskólum.
  • Aukið samstarf skóla og atvinnulífs, m.a. með starfsnámi og verkefnavinnu í tengslum við fyrirtæki og framhaldsskóla.
  • Efla Vinnuskólann sem fyrsta skref ungs fólks á vinnumarkaði með áherslu á fjármálalæsi, vinnusiðferði, sjálfstæði og borgaralega vitund.

Frístundastarf fyrir öll börn og fullorðna

Viðreisn vill að öll börn hafi jafnt aðgengi að fjölbreyttu, aðgengilegu og metnaðarfullu frístundastarfi.

 

Áherslur

  • Efla frístunda-, íþrótta- , tónlistar og skapandi nám í nærumhverfi barna.
  • Boðið verði upp á kynningardaga íþrótta og tómstunda fyrir öll börn og fullorðna.
  • Endurskoða frístundastyrki með það að markmiði að þeir mæti fjölbreyttari hópum.
  • Tryggja betra aðgengi að íþrótta-, tónlistar- og tómstundanámi til að gera börnum kleift að stunda fleiri en eina tómstund.
  • Markviss stuðningur fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn til að tryggja þátttöku þeirra í frístunda- og íþróttastarfi.
  • Auka opnunartíma félagsmiðstöðva, meðal annars yfir sumartímann.
  • Tryggja áframhaldandi starf Ungmennahús Hreiðursins og auka fjölbreytt klúbbastarf.
  • Bætt aðstaða fyrir jaðaríþróttir, þar á meðal rafíþróttir, hjól og þess háttar.
  • Auka aðgengi að námi í tónlist og öðrum skapandi greinum. Skoðað verði hvernig hægt er að nýta skóla eða íþróttahúsnæði bæjarins.
  • Efla aðgengi að íþrótta- og tómstundahúsnæði fyrir skipulagt íþrótta- og tómstundastarf fullorðinna.
  • Auka samstarf íþrótta- og tómstundafélaga.

Góð lífsgæði og lifandi samfélag

Lífsgæði snúast ekki aðeins um þjónustu heldur líka um að njóta lífsins. Í Hafnarfirði viljum við skapa umhverfi þar sem fólk getur lifað heilbrigðu, öruggu og innihaldsríku lífi í sínu nærumhverfi. Bærinn er staðsettur í einstakri útivistarparadís og býr yfir ríkri sögu og fjölbreyttum stöðum sem bjóða upp á afþreyingu, menningu og samveru fyrir alla fjölskylduna.

 

Áherslur

  • Við viljum fá menningarhús í Hafnarfjörð.
  • Fjölskyldudagur Hafnarfjarðar verði settur á laggirnar og haldinn einu sinni í mánuði.
  • Skipuleggjum skemmtilegan og fallegan miðbæ.
  • Klárum skipulag Flensborgarhafnar og tengingu við miðbæinn.
  • Við viljum tryggja áfram blómlegt líf í bænum, meðal annars með þeim bæjarhátíðum sem fyrir eru.
  • Betri stíga fyrir alla í upplandinu, hjólandi, gangandi og hestamenn.
  • Setjum glervegg á Sundhöllina, sjávarútsýni úr pottunum og góða tengingu við sjósund.
  • Fjölgum skilgreindum hundasvæðum og bætum þau sem fyrir eru.
  • Ýtum undir og styðjum við frumkvæði einkaframtaks, svo sem gönguskíðaspor, gusur og fleiri slík skemmtileg verkefni.
  • Hafnarfjarðarbær styðji við og styrki húseigendur sem vilja kynna sögu húsa sinna með skiltum fyrir framan húsin.
  • Sett verði afþreyingartæki og leiktæki við helstu göngustíga bæjarins.
  • Við leggjum áherslu á að efla og þróa starfsemi Lífsgæðasetursins til að bæta lífsgæði íbúa.
  • Aukum aðgengi bæjarbúa að samfélags- og matjurtagörðum.
  • Aukum samstarf við nágrannasveitarfélög, með það að markmiði að bæta samgöngur, efla forvarnarstarf og tryggja farsæld barna.

Öruggur og aðgengilegur Hafnarfjörður

Við setjum öryggi íbúa í forgang og viljum bæta samgöngur, göngu- og hjólastíga, almenningssamgöngur,  lýsingu og snjómokstur.

 

Áherslur

  • Öruggar leiðir barna í skóla og frístundir verði lykilatriði í samgönguáætlun.
  • Samfellt net göngu- og hjólastíga milli hverfa
  • Öflugra almenningssamgangnakerfi sem fólk treystir, skýrara leiðarkerfi og betri tengingu við Reykjavík.
  • Finna lausn á umferð Reykjanesbrautar til að tengja bæinn betur saman, auka öryggi, draga úr hávaða, loftmengun og leysa umferðarvanda til framtíðar.
  • Bætum lýsingu, viðhald og snjómokstur.
  • Fýsileikagreining og hönnun undirganga á lykilstöðum með Vegagerðinni.
  • Við munum tala fyrir litlum og vistvænum innanbæjarvögnum.

Skipulag og húsnæðismál

Viðreisn vill framkvæmdir og skipulag sem byggja á fagmennsku, heildarsýn og auknum lífsgæðum. Skipulag mótar daglegt líf bæjarbúa, því skiptir máli að ákveða hvar við byggjum, hvernig við byggjum og hvað fylgir með.

 

Gæði í skipulagi

  • Skipulag byggt á ítarlegum greiningum, stafrænum lausnum og gagnsæi.
  • Við viljum byggja bæ sem heldur í sín sérkenni, virkar vel og eldist með sóma.
  • Sett verði á gæðaeftirlit framkvæmda, skipulagsmála og ákvarðana.
  • Lífsgæði bæjarbúa, virðing fyrir náttúru og menningu er okkar leiðarljós í skipulagsmálum.
  • Skýr og reglubundin upplýsingagjöf til íbúa.
  • Nýta stafræna tækni til þess að kynna íbúum deiliskipulagsbreytingar, myndbönd, þrívídd og aðrar tæknilausnir. 
  • Skilvirkara ferli og styttri afgreiðslutímar skipulagsmála.
  • Gott samstarf og samtal við lóðarhafa, framkvæmdaraðila og kaupendur.

 

Húsnæðismál

  • Fjölbreytt framboð íbúða fyrir ungt fólk, fyrstu kaupendur, fjölskyldur og eldra fólk.
  • Samstarf við óhagnaðardrifin félög um hagkvæmar íbúðir.
  • Áður en við byggjum ný hverfi eða stækkum eldri hverfi þá styrkjum við innviði hverfanna.
  • Stuðlum að samningi um heilsugæslu í 221 Hafnarfirði.
  • Þétting þar sem innviðir og nærþjónusta eru þegar til staðar.
  • Eldri aldurshópar eiga að hafa raunverulegt og fjölbreytt val til þess að geta flutt sig til innan bæjarins.

Velferðarkerfi sem grípur fyrr

Viðreisn vill samþætt og aðgengilegt velferðarkerfi sem styður börn, fjölskyldur, eldra fólk og fólk með stuðningsþarfir með skýrum og stuttum boðleiðum.

 

Áherslur

  • Styrking grunnþjónustu: Farsæld barna, barnavernd og félagsþjónusta.
  • Styttri boðleiðir og skýrari ferlar í samþættri þjónustu.
  • Öflug úrræði fyrir börn með stuðningsþarfir.
  • Burt með biðlista barna.
  • Aðgengileg heilsuefling, tómstundir og íþróttir fyrir alla hópa.
  • Innleiða velferðartækni í þjónustu með það að markmiði að auðvelda fólki að búa á eigin heimili við betri lífsgæði, þrátt fyrir öldrun, fötlun eða veikindi.

 

Fólk með fötlun

  • Fjölbreytt búsetuúrræði sem virða sjálfstæði og mannréttindi.
  • Gott aðgengi í öllum mannvirkjum, samgöngum og almenningsrýmum.
  • Tryggja að upplýsingar og þjónusta séu aðgengileg öllum.
  • Styðja við atvinnuþátttöku og virka þátttöku í samfélaginu.
  • Öflugt tómstunda- og íþróttastarf með aðgengi fyrir alla.
  • Gera úttekt á aðgengi með hliðsjón af bæði sýnilegri og ósýnilegri fötlun.

 

Eldra fólk

  • Þjónusta byggð á virðingu og einstaklingsbundnum þörfum.
  • Lífsgæðakjarnar með samþættri þjónustu.
  • Efld heilsuefling og þátttaka til að draga úr félagslegri einangrun.
  • Styðja við atvinnuþátttöku eldra fólks og skapa sveigjanleg tækifæri til áframhaldandi vinnu og virkrar þátttöku í samfélaginu.
  • Samræmd heimaþjónusta og heimahjúkrun.

Atvinnulíf, nýsköpun og framtíðarstörf

Hafnarfjörður verði framsækið og aðlaðandi sveitarfélag fyrir ný fyrirtæki, ný störf og nýjar kynslóðir.

 

Áherslur

  • Sterkara samstarf við skóla, háskóla, frumkvöðla og fyrirtæki.
  • Uppbygging Nýsköpunar- og þróunarseturs.
  • Einfaldara regluverk og hraðari uppbygging atvinnusvæða.
  • Opið gagnatorg með ópersónugreinanlegum gögnum.
  • Aukin notkun gervigreindar í þjónustu til að stytta afgreiðslutíma og lækka kostnað.
  • Atvinnuráðgjöf fyrir unga fólkið okkar undir „Hafnarfjörður sem fyrsta heimili“.
  • Hefjum undirbúning uppbyggingar þyrluflugvallar við Hvassahraun í samstarfi við sveitarfélagið Voga.

Loftslags- og umhverfismál

Viðreisn vill skýrar loftslagsaðgerðir, hreinna umhverfi og græna innviði sem þjóna bæði íbúum og framtíðarkynslóðum Hafnarfjarðar. Hafnarfjörður verði grænn bær með mælanlegum markmiðum og raunhæfum aðgerðum.

 

Áherslur

  • Aukin sópun og hreinsun gatna til að bæta loftgæði.
  • Græn hverfi með tengdum útivistarsvæðum og hjóla- og göngustígum.
  • Meiri trjárækt, minni mengun og hreinni bær.
  • Kolefnisbókhald innleitt í allar nýjar framkvæmdir.
  • Fleiri loftgæðamælar.

Ábyrg fjármálastjórn og skilvirk stjórnsýsla

Fjármál sveitarfélagsins eiga að vera sjálfbær, gagnsæ og í þágu grunnþjónustu.

 

Fjármál

  • Opið bókhald, reglulegt eftirlit og fylgst með fjárútlátum ársfjórðungslega.
  • Endurskoðun innkaupa til að ná 5–12% sparnaði.
  • Áhersla á niðurgreiðslu skulda og að forðast hallarekstur.

 

Nútímaleg stjórnsýsla

  • Notkun gervigreindar og stafrænna lausna til einföldunar og sparnaðar.
  • Skilvirkari þjónusta og styttri afgreiðslutímar.
  • Mannleg og persónubundin þjónusta sem tekur mið af þörfum íbúa.
  • Greinum allar ákvarðanir bæjarins út frá áhrifum á lífsgæði bæjarbúa.

 

Innviðir

  • Íbúar fái virka rödd þegar kemur að viðhaldi innviða.
  • Gott og skilvirkt viðhald á innviðum bæjarins, húsnæði, götum, stéttum og fleira.
  • Aukið fjármagn í reglubundið viðhald og eftirlit á húsnæði og lóðum leik- og grunnskóla bæjarins.
  • Stuðlað verði að forvörnum í viðhaldi.

 

Íbúalýðræði

  • Vefurinn Betri Hafnarfjörður efldur með skýrum ferlum og auknum sýnileika.
  • Skilvirkur samráðsvettvangur þar sem íbúar geta haft áhrif.
  • Upplýsingar birtar á skýran hátt: hvað íbúar lögðu til, hvað var tekið upp og hvaða breytingar urðu.
 

Lokaorð

Viðreisn vill gera Hafnarfjörð að leiðandi bæ í bættum lífsgæðum bæjarbúa, þjónustu, gæðum og framtíðarsýn.

Við ætlum að:

  • Setja börn og ungmenni í forgrunn allra ákvarðana.
  • Láta bætt lífsgæði bæjarbúa verði leiðarljós í allri ákvarðanatöku bæjarins.
  • Forgangsraða grunnþjónustu og verja skattfé íbúa af ábyrgð.
  • Starfa af heiðarleika, gagnsæi og fagmennsku.
  • Byggja sjálfbæran, mannvænan og framsækinn Hafnarfjörð fyrir framtíðina.