Félagið Viðreisn Árnessýslu var stofnað 15. febrúar 2018. Félagið starfar innan landshlutaráðs Viðreisnar í Suðurkjördæmi og tekur til allra sveitarfélaganna í Árnessýslu. Félagsmenn Viðreisn Árnessýslu eru félagsmenn Viðreisnar sem lögheimili hafa í Árnessýslu.
Í sveitarstjórnarkosningum 2022 tók Viðreisn þátt í framboðinu Áfram Árborg og er fulltrúi Viðreisnar varabæjarfulltrúi. Áfram Árborg fékk 7,9% atkvæða.
Þau sem áhuga hafa að starfa með félaginu geta sent formanni tölvupóst á netfangið arnessysla@vidreisn.is og fylgst með á facebooksíðu félagsins.
Í stjórn Viðreisnar Árnessýslu sitja:
- Ástrós Rut Sigurðardóttir formaður
- Axel Sigurðsson
- Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
- Hannes Sigurðsson
- Stefán Þorleifsson varamaður
- Týr Þórarinsson varamaður