Stefna Viðreisnar í Kópavogi
2026-2030

Fjölskyldan í forgang

 

Megináherslur Viðreisnar í Kópavogi eru:

 

  • Börn og ungmenni í fyrsta sæti
  • Ábyrgur og gegnsær rekstur
  • Lifandi og skemmtilegt samfélag

 

Viðreisn í Kópavogi mun vinna að umbótum með metnað og gleði að leiðarljósi. Við viljum stuðla að framförum og bættum lífsgæðum bæjarbúa á grunni framsýnar, frjálslyndis og faglegra vinnubragða. 

 

Við viljum að Kópavogur verði best rekna sveitarfélag landsins, þar sem almannahagsmunir ganga framar sérhagsmunum. Íbúar munu geta treyst því að grunnþjónustan verði ávallt í forgangi og að stjórnsýslan sé aðgengileg og skilvirk. 

 

Viðreisn í Kópavogi leggur áherslu á að skapa samfélag þar sem íbúar hafa gott aðgengi að grænum og heilsueflandi svæðum. Við munum vinna að því að bæta og einfalda líf allra íbúa Kópavogs, nú og til framtíðar.

Börn og ungmenni

Lykiláhersla Viðreisnar í Kópavogi á næsta kjörtímabili er að taka betur utan um börnin okkar. Kópavogur á að vera bær sem laðar til sín fjölskyldur. Til þess þarf þjónusta við öll börn að vera í hæsta gæðaflokki.

Áherslur

  • Stytta biðlista barna og ungmenna sem þurfa þjónustu Kópavogs og fjölga úrræðum
  • Þjónustan skal vera aðgengileg og sniðin að þörfum barna, ungmenna og fjölskyldum þeirra
  • Öll börn eiga að fá skólaúrræði við hæfi
  • Bæta þjónustu við langveik börn og fjölskyldur þeirra
  • Viðhalda skal opnunartíma félagsmiðstöðva og efla starfsemi þeirra
  • Skólar eiga að vera griðarstaður og skjól. Efla á markvisst fræðslu um fjölbreytileika í grunnskólum Kópavogs til að allir upplifi öryggi, viðurkenningu og jöfn tækifæri
  • Að börn sem flytja til landsins fái viðeigandi stuðning frá fyrsta degi, bæði í námi og félagslegri aðlögun í samstarfi við velferðarsvið

Ábyrg fjármálastjórn og skilvirk stjórnsýsla

 

Viðreisn í Kópavogi vill tryggja ábyrgan, gagnsæjan og sjálfbæran rekstur Kópavogs. Fjármuni bæjarbúa á að nýta vel, forgangsröðun á að vera skýr. Ákvarðanir eiga að byggja á fagmennsku og skýrri framtíðarsýn. 

 

Fjármál

  • Við ætlum að auka gagnsæi í bókhaldi bæjarins, reglulegt eftirlit og endurskoðun
  • Styrkja innkaupaferla til að ná niður kostnaði
  • Við ætlum að setja skýr markmið um lækkun skulda bæjarins á kjörtímabilinu og forðast auknar lántökur og hallarekstur
  • Við viljum nýta tekjur af lóðasölu til innviðauppbyggingar en ekki í daglegan rekstur bæjarins

 

Nútímaleg stjórnsýsla

  • Einfalda ferla, hækka þjónustustig og stytta boðleiðir
  • Auka stafræna þjónustu og nota gervigreind til einföldunar, óhlutdrægni og sparnaðar
  • Upplýsingar um rekstur, fjármál og ákvarðanir eiga að vera aðgengilegar og settar fram á skiljanlegan hátt
  • Aðgengileg þjónusta fyrir íbúa bæjarins

 

Innviðir

  • Efla viðhald og eftirlit skólamannvirkja og skólalóða
  • Innleiða forvirkt viðhald á fasteignum og öðrum mannvirkjum í eigu bæjarins
  • Tryggja að íbúar geti auðveldlega tilkynnt um viðhaldsþörf á eignum og innviðum
  • Gott viðhald á götum, stéttum og húsnæði bæjarins ásamt öðrum innviðum.

 

Íbúalýðræði

  • Virkt samráð sé við íbúa og starfsfólk bæjarins. Samráð skal vera raunverulegt. Gera skal grein fyrir niðurstöðum að loknu samráði og rökstuðningur fyrir ákvörðunum og stefnum skal gefin sé hans óskað
  • Birta upplýsingar á skýran hátt um hvað sé verið að gera og af hverju

Öflugir skólar og bætt starfsumhverfi nemenda og kennara

 

Viðreisn í Kópavogi vill bæta náms- og starfsumhverfi nemenda og starfsfólks í skólum bæjarins. Bregðast þarf við ákalli kennara vegna fjölmennra og fjölbreyttra nemendahópa með ólíkar þarfir. Með því að veita þeim börnum þjónustu sem þurfa á henni að halda byggjum við upp samfélag þar sem öll börn geta blómstrað. Viðreisn í Kópavogi styður við fjölbreytt rekstrarform í menntakerfinu og leggur jafnframt áherslu á fjölbreytta kennsluhætti og skapandi nám. 

 

Áherslur

  • Að sérfræðingar séu aðgengilegir í skólum og efla þverfaglegt samstarf
  • Skapa starfsumhverfi þar sem kennarar geta einbeitt sér að kjarnahlutverki sínu sem er kennsla
  • Kortleggja stöðu nemenda í samráði við kennara, skólastjórnendur, foreldra og nemendur, endurskoða skal stuðningsþarfir og stærðir námshópa
  • Efla starfstengt nám svo nemendur fái tækifæri til að þroska hæfileika sína á fjölbreyttan hátt
  • Gera samræmda áætlun og skýra stefnu um innra mat í skólum bæjarins
  • Fjölga stöðugildum í leikskólum til að tryggja þjónustu og viðhalda góðu starfsumhverfi
  • Gera breytingar á gjaldskrá leikskólanna þannig að sanngjarnt verð greiðist fyrir dvöl
  • Opið sé á fleiri leikskólum á skráningardögum með fyrirsjáanleika að leiðarljósi
  • Greiða fyrir stofnun einkarekins ungbarnaleikskóla fyrir börn undir tveggja ára aldri
  • Tryggja að allir starfandi kennarar í leik- og grunnskólum bæjarins, og hafa lögheimili í Kópavogi, njóti forgangs fyrir börn sín í leikskólum bæjarins
  • Brúa bilið frá fæðingarorlofi til leikskóla. Auka niðurgreiðslur vegna annarra dagvistunarúrræða þegar börn hafa náð 12 mánaða aldri og bíða eftir leikskólaplássi

Frístundir og íþróttir fyrir alla

Öflugt félags- og frístundastarf er kjarni hvers samfélags. Við viljum styðja við íþrótta- og tómstundastarf í samstarfi við íþróttafélögin, tónlistarskóla og önnur félög. 

 

Áherslur

  • Lengja opnunartíma sundlauga
  • Setja á fót íþrótta- og tómstundadag Kópavogsbæjar í samstarfi við íþróttafélög og þá aðila sem starfrækja ungmennastarf
  • Tryggja að frístundastyrkur grípi betur börn frá tekjulágum heimilum
  • Við ætlum að koma á frístundastyrk fyrir eldri borgara
  • Við viljum endurskoða stigskiptingu frístundastyrks
  • Við ætlum að standa vörð um þjónustu frístundavagnsins. Skoða í samvinnu við íþróttafélögin til að eldri börn geti nýutt sér þjónustu frístundavagnsins
  • Tryggja áframhaldandi starf ungmennahússins Molans
  • Styðja við skapandi sumarstörf

Skemmtilegt samfélag og grænu hjörtu bæjarins

 

Við viljum að það sé gaman að búa í Kópavogi og að íbúar geti notið fjölbreyttrar afþreyingar í bæjarfélaginu. Viðreisn leggur áherslu á varðveislu grænna svæða til leiks, íþrótta, samvista og útiveru. Við viljum skapa aðstæður þar sem að íbúar geti notið alls þess sem að bærinn hefur uppá að bjóða í menningu, útiveru og samveru og tryggja þannig blómlegt líf í bænum.

 

Áherslur

  • Styðja vel við þau frábæru menningarhús sem eru í bænum
  • Vinna að því að flýta fyrir uppbyggingu menningarhúsnæðis í efri byggð
  • Setja á fót bæjarhátíð
  • Aðstaða í sundlaugum bæjarins skal vera í takti við þarfir notenda
  • Hundagerði í efri og neðri byggð
  • Hugmyndasamkeppni um nýtingu á grænum svæðum bæjarins
  • Aukinn kraftur í uppfærslur á leiksvæðum barna
  • Aukið samstarf við nágrannasveitarfélögin með því markmiði að bæta aðgengi að náttúruperlum

Atvinnulíf, nýsköpun og framtíðarstörf

 

Kópavogur á að vera öflugt og aðlaðandi bæjarfélag sem laðar að fyrirtæki og ný störf.

Áherslur

  • Einfalda regluverk og skilvirkari þjónusta til að lækka kostnað fyrirtækja
  • Endurskipuleggja eldri atvinnusvæði í góðu samstarfi við rekstraraðila til að laga þau að nútímaþörfum
  • Styrkja samstarf við skóla, frumkvöðla og fyrirtæki
  • Gera skal úttekt á samkeppnishæfni Kópavogs sem valkosti fyrir ný fyrirtæki
  • Gera skal tímasetta áætlun sem snýst um að gera Kópavog að fyrsta valkosti nýsköpunar- og hátæknifyrirtækja

Öruggar og fjölbreyttar samgöngur

Viðreisn í Kópavogi vill þróa samgöngukerfi með öflugum almenningssamgöngum, traustu vegakerfi og öruggum hjóla- og göngustígum fyrir alla íbúa. Við leggjum áherslu á öruggt og aðgengilegt nærumhverfi með góðum göngu- og hjólaleiðum, betri lýsingu, og fjölbreyttum samgöngum ásamt virku samráði við íbúa.

 

Áherslur

  • Styðja við Samgöngusáttmálann 
  • Tryggja öruggar göngu- og hjólaleiðir með því að aðskilja stíga og auka lýsingu þar sem það á við
  • Stórefla göngu- og hjólaleiðir í efri byggðum sem tengja bæinn betur við falleg græn svæði
  • Gera áætlun um uppbyggingu göngu- og hjólaleiða sem eru á ábyrgð Kópavogsbæjar í samvinnu við nágrannasveitarfélög
  • Næturstrætó um helgar
  • Að hönnunar- og framkvæmdarferli Borgarlínu við Borgarholtsbraut sé í samráði við íbúa

Skipulag og húsnæðismál

 

Við viljum byggja upp Kópavog með gegnsæju og gagnadrifnu skipulagi sem þjónar þörfum íbúa. Með einfaldari stjórnsýslu, styttri svartíma og skýrum boðleiðum skapast betri skilyrði fyrir uppbyggingu. Í húsnæðismálum viljum við tryggja fjölbreytt framboð, sem einnig styðja hagkvæmt húsnæði. Stuðla skal að skynsamlegri þéttingu byggðar, í samráði við íbúa, sem styrkir innviði og lífsgæði. Góð samfélög eru fjölbreytt samfélög. Í Kópavogi er pláss fyrir alla tekjuhópa og skal stuðla að því að aðgangur að verslun og þjónustu sé jafn.

 

Skipulagsmál

  • Aðgengilegt og gagnsætt skipulag með framtíðarsýn
  • Einfaldir ferlar í skipulagsmálum, stytta svartíma og tryggja fyrirsjáanleika 
  • Gera skal langtíma áætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja
  • Leggja skal sérstaka áherslu á uppbyggingu atvinnusvæða

 

Húsnæðismál

  • Kortleggja húsnæðisþörf í Kópavogi
  • Tryggja fjölbreytt búsetuúrræði sem veita raunverulegt val og frelsi á öllum lífsskeiðum
  • Skynsamleg þétting byggðar sem styður við innviði, þjónustu, leiksvæði, samgöngur og lífsgæði

Velferðarkerfi fyrir öll

Viðreisn í Kópavogi vill tryggja heildstæða og skilvirka velferðarþjónustu sem byggir á mannréttindum, virðingu og sjálfsákvörðunarrétti í fjölbreyttu samfélagi. Við leggjum áherslu á að öll velferðarþjónusta sé skipulögð þannig að hún mæti þörfum íbúa á heildstæðan, samfelldan og skilvirkan hátt.  

 

Áherslur

  • Styrking grunnþjónustu: farsæld barna, barnavernd og félagsþjónusta
  • Áframhaldandi vinna í samstarfi við önnur aðildarsveitarfélög varðandi úrræði fyrir heimilislausa

 

Málefni aldraðra

  • Tryggja að eldri íbúar bæjarins fái stuðning til að geta búið sem lengst í heimahúsi
  • Samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings
  • Tryggja að upplýsingar um þjónustu séu aðgengilegar
  • Byggja upp aðgengilega og fjölbreytta þjónustu við þau búsetuúrræði og lífsgæðakjarna sem nú þegar eru til staðar
  • Stuðla að fræðslu erindum í félagsmiðstöðvum aldraðra um næringu, heilsu, hreyfingu, andlega heilsu, réttindi og þjónustu
  • Stuðla að fjölbreyttum vettvangi fyrir sjálfsprottið félagsstarf eldri borgara í samstarfi við stofnanir og félagasamtök bæjarins, svo sem íþróttafélög, hestamannafélag, kirkjuna o.fl

 

Fólk með fatlanir og sértækar þarfir

  • Styðja við virka þátttöku í samfélaginu, hvort sem til atvinnu eða tómstunda
  • Stuðla að fjölbreyttum búsetuúrræðum sem virða sjálfstæði og mannréttindi
  • Stytta biðlista barna svo þau fái viðeigandi þjónustu, þar með talið liðveislu sem fyrst
  • Aðgengi að öflugu tómstunda og íþróttastarfi
  • Skjót fjármögnun NPA samninga
  • Auka sýnileika táknmáls í Kópavogi og gera fleirum kleift að fræðast um táknmál
  • Fjölga úrræðum og bæta í stuðning og fræðslu fyrir aðstandendur barna með fjölþættan vanda

Loftslags- og umhverfismál

 

Viðreisn vill skýrar og mælanlegar aðgerðir í loftslagsmálum í samræmi við gildandi lög og skuldbindingar. Kópavogur á að vera grænn og hreinn bær þar sem að græn svæði og hreint umhverfi þjóna íbúum bæjarins.

 

Áherslur

  • Aukin trjárækt innan bæjarmarka
  • Bærinn sé hreinn og laus við rusl
  • Kolefnisspor framkvæmda sé lágmarkað eins og kostur er
  • Aðgengi að grænum svæðum sé auðvelt með góðri tengingu hjóla- og göngustíga

Lokaorð

Viðreisn í Kópavogi fer í þessar kosningar með skýra sýn: að setja bæjarbúa, þjónustu við þá og almannahagsmuni í forgang. Við viljum breyta áherslum í bæjarstjórn og leggja grunn að ábyrgari, gagnsærri og skemmtilegri Kópavogi.

 

Við ætlum að:

  • Setja börn og ungmenni í forgang
  • Forgangsraða skattfé í grunnþjónustu
  • Stórauka samtal við íbúa í ákvarðanatöku
  • Skapa réttlátt samfélag þar sem að almannahagsmunir ganga framar sérhagsmunum
  • Heiðarleiki og fagmennska verða okkar leiðarstef