Stefna Viðreisnar í Mosfellsbæ
2026-2030

Skóla-, frístundar- og dagvistunarmál

 

Það er okkur hjartans mál að gera skólamálum hátt undir höfði, tryggja dagvistun og vellíðan barna sem og starfsmanna. Við viljum einfalda líf foreldra í Mosfellsbæ með lausnamiðuðum nýjungum og skapa jarðveg fyrir sjálfstætt starfandi skóla.

 

Við viljum nýta tækifærin sem þessu fylgja og móta metnaðarfullt fræðslu- og frístundastarf sem tekur mið af þörfum íbúa Mosfellsbæjar. 

 

Við viljum leggja áherslu á að bjóða börnum og starfsfólki bæjarins upp á nútímatækni og aðbúnað til að geta tekist á við verkefni sín í takt við þann heim sem við búum í. Til þess að ná þessum markmiðum viljum við grípa til eftirfarandi aðgerða. 

 

Við ætlum að:

  • Halda áfram því góða verkefni sem við settum á fót með “Börnin okkar”. 
  • Festa í sessi sálfræðiþjónustu í skólum og gera langtímasamning við Bergið Headspace um þjónustu við ungt fólk. 
  • Tryggja áframhaldandi starf Foreldralínu og halda áfram að styrkja fræðslu og aðstoð við foreldra.  
  • Bæta starfsumhverfi á öllum skólastigum. Leggja skal áherslu á starfsþróun, markvissa faglega endurgjöf, tæknivætt starfsumhverfi og samþætta stoðþjónustu. 
  • Tryggja fjölbreytta náms- og kennsluhætti og að menntastefna allra skólastiga endurspegli mikilvægi stafrænnar færni og þekkingu til að búa og starfa í nútímasamfélagið. Einnig þarf að veita kennurum tækifæri til að þróa getu sína til að miðla þekkingu á stafrænni tækni. Allir skólar skulu hafa gott aðgengi að starfsmanni sem sér um stafræna tækni. 
  • Auka miðlægan stuðning vegna reksturs skóla, svo stjórnendur geti einbeitt sér að faglegu starfi.
  • Mæta þörfum nemenda með áherslu á þverfaglegt samstarf og snemmtæka íhlutun innan skóla. Til þess þarf öflugt teymisstarf fagfólks á sviðum velferðar, heilbrigðis og skóla. 
  • Stytta biðlista eftir talmeinafræðingum með bættum samningum við ríkið og fjarþjónustu
  • Styðja sérstaklega við börn með ólíka færni og börn sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. 
  • Tryggja uppbyggingu skóla í samræmi við íbúaþróun og viðunandi viðhald og breytingar á skólahúsnæði í takt við þarfir. 
  • Tryggja dagvistun barna frá 12 mánaða aldri. Foreldrar greiði það sama hvort sem barn er í leikskóla eða hjá dagforeldri. 
  • Skapa jarðveg fyrir sjálfstætt starfandi skóla í Mosfellsbæ til þess að auka fjölbreytni í skólastarfi og bjóða börnum og kennurum upp á fleiri valkosti. 
  • Efla frístundastarf til þess að vera mikilvægur hlekkur í heildstæðu skólaári. 
  • Halda áfram að efla starfsemi í Bólinu félagsmiðstöð, með lengri opnunartíma og sumaropnun.
  • Virkja ungmennin í hugmyndavinnu til að verkefni Bólsins og Vinnuskólans verði fjölbreyttari og styðji áhuga, þroska og félagslegar þarfir ungmenna.
  • Viðhalda vottuninni sem Barnvænt sveitarfélag.

Skipulagsmál

 

Í Mosfellsbæ eru fjölmörg tækifæri til frekari uppbyggingar og við í Viðreisn viljum standa undir samfélagslegri ábyrgð okkar og bjóða upp á fjölbreytta húsnæðiskosti og auka lóðaframboð. Sjálfbær uppbygging sem stuðlar að umhverfisvænum hverfum á að vera leiðarstef í allri skipulagsvinnu.

 

Við viljum gera betur í skipulagsmálum með því að einfalda ferla, auka gagnsæi og tryggja að ákvörðunartaka sé ávallt fagleg og málefnaleg. 

 

Mikilvægt er að halda áfram að hafa reglulega upplýsingagjöf um skipulag, stöðu verkefna og vettvang fyrir virkt samtal. Með þessu móti má tryggja að meiri sátt ríki um þá miklu uppbyggingu sem er framundan í Mosfellsbæ.

 

Við viljum:

  • Valfrelsi í samgöngum og munum þrýsta á lausnir sem létta á umferðarþunga frá Mosfellsbæ og austurhluta Reykjavíkur, meðal annars með lagningu Sundabrautar og uppbyggingu Borgarlínu.
  • Tryggja virka samgöngumáta í skipulagi, þar með talið uppbyggingu og viðhald samgöngustíga. 
  • Tengja saman Mosfellsbæ með því að koma Vesturlandsvegi í stokk. 
  • Aukið og fjölbreytt framboð af íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem þjónar þörfum samfélagsins.
  • Skilvirkari ferla í skipulagsmálum til að flýta uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis. 
  • Styrkja menningarása í bænum þar sem mannlíf fær að blómstra. Má þar nefna svæðið frá Álafossi að Varmársvæðinu og upp að Þverholti, Bjarkarholtið og Blikastaðabæinn. 
  • Skipuleggja svæðið fyrir ofan Álafosskvos með það að markmiði að skapa útivistar- og menningarsvæði. 
  • Huga sérstaklega að umferðaröryggi gangandi og hjólandi íbúa, t.d. með gerð undirganga við Sunnukrika til móts við Krikaskóla og við Álafossveg næst Vesturlandsvegi.
  • Tryggja umferðaröryggi um Þingvallaveg og þrýsta á að framkvæmdum við varanlega lausn vegarins verði lokið á kjörtímabilinu. 
  • Hundaleikjagarð þar sem aðgengi allra hundaeigenda er tryggt og skilgreina svæði í útjaðri byggðar fyrir lausagöngu hunda, eins og gert er í nágrannasveitarfélögum. 

Stjórnsýsla og fjármál

Við ætlum að halda áfram að efla stjórnsýslu Mosfellsbæjar, tala fyrir hóflegum álögum á íbúa og fyrirtæki og skattalækkunum þegar við á. Stjórnsýslan á að vera einföld og stafræn. Við ætlum að halda áfram að efla getu sveitarfélagsins til að mæla árangur og setja fram mælanleg markmið til að tryggja yfirsýn og auðvelda faglega ákvarðanatöku.

Við viljum:

  • Faglega ráðinn bæjarstjóra
  • Stjórnsýslu sem þjónar íbúum 
  • Halda áfram að bæta stafræna þjónustu, t.d. þannig að íbúar geti fylgst með stöðu sinna mála
  • Sanngjarnar álögur á íbúa
  • Ábyrgð í rekstri og tryggja að skattpeningum sé vel varið. Til að svo sé verður að setja Mosfellsbæ fjármálastefnu, bætta innkaupastefnu og eignastefnu um viðhald og rekstrarkostnað fasteigna sveitarfélagsins.
  • Gagnsætt og opið bókhald Mosfellsbæjar með skýrri og myndrænni framsetningu gagna. 
  • Skýr og mælanleg markmið í allri starfsemi sveitarfélagsins og eflingu innri endurskoðunar Mosfellsbæjar.
  • Laða að atvinnustarfsemi, m.a. með því að fjölga lóðum og nýta hvata svo sem lækkun gatnagerðargjalda til að styrkja samkeppnishæfni. Sérstaklega viljum við styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf. 
  • Að sett verði skýr markmið í skipulags-, velferðar- og umhverfismálum, sem séu vöktuð með mælingum bæði fjárhagslegum og velferðartengdum. Það gerir okkur kleift að ráðstafa fjármunum bæjarbúa á tryggan og gagnsæjan hátt.

Lýðheilsu- og velferðarmál

 

Við viljum öfluga velferðarþjónustu sem byggir á jafnrétti, mannréttindum, virðingu, virkni og aðstoð til sjálfshjálpar. Við viljum tryggja að lífskjör og tækifæri íbúa Mosfellsbæjar séu í fremstu röð. Við teljum að mannréttindi séu órjúfanlegur hluti frjálslyndis og þau ber að efla á öllum sviðum.Við teljum mismunun ólíðandi.  

 

Velferð allra íbúa er grunnur að góðu samfélagi. Við styðjum sjálfstæði og sjálfsvirðingu einstaklinga og styðjum þá til virkni. Gera þarf fólki kleift að búa á eigin heimili eins lengi og hægt er. Fræðslu- og velferðaryfirvöld eiga að starfa saman með þarfir barna að leiðarljósi. 

 

Við viljum:

  • Tryggja farsæld barna. Þar skiptir máli að fræðslu- og velferðarteymi starfi saman. Að áætlanir varðandi uppbyggingu í Farsældartúni gangi eftir og að forvarnir séu leiðandi stef í störfum Mosfellsbæjar. 
  • Að öll börn í Mosfellsbæ hafi jöfn tækifæri og að börn efnaminni foreldra fái aukinn styrk til íþrótta og tómstunda. 
  • Fjölga tækifærum fyrir fatlaða til hreyfingar og heilsueflingar í náttúru bæjarins.
  • Markvissa uppbyggingu á sértækum búsetuúrræðum fyrir fatlaða.
  • Stórefla notendasamráð og gerð þjónustukannana. Niðurstöðurnar á að nýta til að þróa og efla velferðarþjónustuna.
  • Tryggja að íbúar fái faglega og réttláta þjónustu við hæfi. Til að svo verði erum við hlynnt aukinni útvistun á velferðarþjónustu.
  • Halda áfram með verkefnið “Gott að eldast” og þannig tryggja að þörfum sé mætt og þjónusta þróuð í takt við breytingar á þörfum aldraðra.
  • Fjölga hjúkrunar- og dagdvalarrýmum í samstarfi við ríkið.
  • Efla félagslega húsnæðisuppbyggingu fyrir þá sem þurfa.
  • Að lýðheilsa og heilsuefling sé hluti af samfélaginu öllu.
  • Efla aðgengi eldri borgara að félagsstarfi.
  • Endurskoða og bæta heimilisaðstoð til þeirra sem á þurfa að halda.

Íþrótta- og tómstundamál

 

Mosfellsbær skal vera samfélag fyrir alla aldurshópa. Við viljum standa vörð um öflugt íþrótta- og tómstundastarf. Félags-, íþrótta- og tómstundastarf, fyrir börn jafnt sem fullorðna, stuðlar að aukinni félagsfærni og lýðræðisvitund, hefur forvarnargildi og bætir heilsu og vellíðan. Við viljum að Mosfellsbær verði framúrskarandi þegar kemur að íþrótta- og tómstundamálum, þar sem allir hafi jafnan kost á því að stunda íþróttir og tómstundir óháð kyni, aldri eða stöðu.

 

Við viljum:

  • Stúku við aðalvöll Mosfellsbæjar og halda áfram endurbótum. 
  • Opna skíðasvæðið í Skálafelli og að staðið verði við uppbyggingu á skíðasvæðinu. 
  • Lengja opnunartíma sundlauganna um helgar.  
  • Tryggja aðgengi fyrir alla í nýbyggingum og endurnýjun á mannvirkjum. Þar með talið ókyngreinda salernis- og búningaaðstöðu. 
  • Að komið sé á móts við efnaminni foreldra og tryggt að börn upplifi ekki mismunun vegna fátæktar eða félagslegra aðstæðna.
  • Að börn í 1. -3. bekk geti æft fleiri en eina íþrótt innan síns íþróttafélags og að eitt gjald sé greitt fyrir þessar æfingar.   
  • Öflugt og faglegt samstarf við íþróttahreyfinguna. Liður í því er samráðsvettvangur á milli stjórnsýslunnar, íþróttafélaganna og hagaðila svo sem notenda og starfsmanna.
  • Efla frístundastarf grunnskólanna. 
  • Efla aðgang íbúa að náttúrunni og fellunum með bættu viðhaldi og lagningu nýrra stíga ásamt því að veita góðar upplýsingar um hjóla-, hlaup-, reið-, og gönguleiðir. Fellin og náttúran eru mikilvægir staðir til þess að nýta í heilsueflingu og öryggi þar þarf að vera tryggt.

Menningarmál

 

Þróttmikið menningar- og listastarf er eitt af einkennum Mosfellsbæjar. Listaskólinn starfrækir tónlistardeild, leikfélag, myndlistarskóla og öfluga skólahljómsveit. Jafnframt er gróskumikið kórastarf í bænum og fjölmargir starfandi listamenn. Segja má að í Mosfellsbæ hafi verið sáð vel í frjóan jarðveg og hér hafi sprottið sannkallaðar listaspírur. Þessu starfi ber að hlúa vel að áfram.

 

Við viljum:

  • Standa vörð um öflugt menningarlíf í Mosfellsbæ og tryggja grósku, sköpun og þróttmikið starf í Listaskólanum.
  • Tryggja að til staðar sé aðstaða fyrir tónlistardeild Mosfellsbæjar, Bæjarleikhúsið og Myndlistarskóla Mosfellsbæjar.
  • Að skólar og mannvirki á vegum bæjarins opni dyr sínar fyrir listviðburðum og menningu. Þannig eflum við menningarlíf og gefum listamönnum tækifæri til að koma sér á framfæri, ásamt því að nýta betur aðstöðu sem þegar er til staðar. 
  • Fá tónlistarsal sem nýtist fleiri íbúum, við uppbyggingu næstu skólabyggingar. 
  • Fjölga útilistaverkum á almennum svæðum.
  • Halda áfram menningaruppbyggingu í og við Hlégarð.
  • Auka aðgengi að skapandi félags- og tómstundastarfi og fjölbreyttu menningaruppeldi frá unga aldri. 
  • Styðja við sjálfstæða listamenn og sjálfstæð menningarfélög. 
  • Tengja saman menningu og útivist með því að vera með upplýsingagjöf á útivistarsvæðum til þess að varðveita sögu sveitarfélagsins. 

Umhverfismál

Mosfellsbær býr að einstakri tengingu byggðar og náttúru á höfuðborgarsvæðinu og bæjarfélagið á að vera í fremstu röð þegar kemur að umhverfismálum. Umhverfismál er víðfemur málaflokkur sem snertir allar hliðar í rekstri sveitarfélaga. Með því að taka stór og ákveðin skref í umhverfisvernd má ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna hratt og vel.

Við viljum:

  • Styðja vistvænar samgöngur og eflingu almenningssamgangna. 
  • Stuðla að bættri umhverfisvitund íbúa. 
  • Berjast gegn því að mengandi iðnaður safnist saman við bæjarmörkin, þar á meðal lyktarmengandi iðnaður.
  • Mæla loftgæði í bænum. 
  • Fleiri tré í Mosfellsbæ til að auka bindingu kolefnis og auka skjól.
  • Fjölga ruslatunnum í bænum
  • Stuðla að heilbrigðu vistkerfi ánna okkar og lækja. 
  • Átak í hreinsun á iðnaðarsvæðum. 
  • Standa vörð um einstækar útivistarperlur Mosfellsbæjar. 
  • Tryggja að uppbygging í sveitarfélaginu sé í sátt í umhverfið.