Siðareglur þessar taka til kjörinna fulltrúa flokksins og annarra þeirra er gegna trúnaðarstörfum á vegum hans. Reglurnar taka jafnframt til allrar háttsemi á fundum og öðrum viðburðum sem haldnir eru á vegum flokksins eða aðildarfélaga hans.
- Við hjá Viðreisn komum fram við allt fólk, innan flokks sem utan af virðingu og höfnum hverskyns mismunun, áreitni (kynbundinni eða kynferðislegri), einelti eða annarri vanvirðandi framkomu.
- Við hjá Viðreisn höfum jafnrétti að leiðarljósi í starfi okkar og gerum ekki upp á milli fólks hvort heldur er vegna kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, skoðana, starfa, stjórnmálaskoðana, tungumáls, uppruna, áhugamála eða annars.
- Við hjá Viðreisn temjum okkur gott orðfæri í samskiptum og berum virðingu fyrir skoðunum annarra, samherja sem keppinauta og höfum í huga að orð eru máttug.
- Við hjá Viðreisn gætum þess að persónuleg tengsl leiði ekki til hagsmunaárekstra sem koma niður á flokknum eða þjóðinni.
- Við hjá Viðreisn sýnum gott fordæmi og hvetjum aðra til þess sama og berum virðingu fyrir þeim siðareglum sem við höfum sett okkur.
- Reglur þessar taka til kjörinna fulltrúa flokksins og annarra er gegna trúnaðarstörfum.
Séu siðareglur þessar ekki virtar er bent á aðgerðaáætlun gegn einelti, áreitni og ofbeldi.
Trúnaðarráð Viðreisnar
Samþykkt af stjórn Viðreisnar 22. febrúar 2019