Stefna Viðreisnar í Reykjanesbæ
2026-2030

VIÐREISN FYRIR REYKJANESBÆ

Rekstur og stjórnsýsla

Við leggjum áherslu á traustan og ábyrgan rekstur Reykjanesbæjar þar sem:

 

  • Ákvarðanir byggja á gögnum, gagnsæi og faglegri nálgun.
  • Áhersla er á skýra verkferla og nýtingu nýrra lausna til að auka skilvirkni og hagkvæmni.
  • Við erum með fagfólk í nefndum og ráðum.
  • Við eflum samráð við íbúa og tryggjum að stjórnsýslan sé sveigjanleg, fagleg og í stöðugri þróun.
 

Markmið okkar er bæta þjónustu með skynsamlegri nýtingu fjármuna og ábyrgri forgangsröðun.

Lífsgæði og menntun

Við viljum jöfn tækifæri og aukin lífsgæði bæjarbúa á öllum æviskeiðum, frá fyrstu árum barna til efri ára.

Við leggjum áherslu á öflugt og framsækið menntakerfi með:

 

  • Auknum stuðningi við sérfræðinga.
  • Raunverulegum aðgerðum vegna undirmönnunar í leik- og grunnskóla með samráði við menntasvið.
  • Að fækka nemendafjölda í hverjum bekk.
  • Samræmingu á starfi á milli grunnskóla.
  • Enn meiri samvinnu á milli skóla, fjölskyldna og samfélagsins.
  • Takmörkun á síma- og samfélagsmiðla notkun í skólum.
  • Stofna til leikskólaráðs.
 

Við leggjum áherslu á valfrelsi fjölskyldna og fjölbreytt úrræði:

  • Við viljum auka stuðning við dagforeldra, til dæmis með að koma á fót dagforeldrakjarna á kjörtímabilinu.
  • Við viljum dagvistun frá lokum fæðingarorlofs og stuðla að meira valfrelsi fjölskyldna.
 

Áhersla á fjölbreytta hópa í samfélaginu:

  • Styðjum við virka þátttöku þeirra í samfélaginu.
  • Við viljum sterkari innleiðingu á farsæld barna.
  • Markvissa uppbyggingu í búsetu- og stuðningsúrræðum.
 

Að lokum viljum við stórauka menningu, samfélagsþátttöku og öryggi íbúa með sterkum innviðum og skýrri framtíðarsýn fyrir menningarlíf sveitarfélagsins.

Íþróttir og tómstundir

Við viljum móta skýra framtíðarsýn fyrir íþróttir og tómstundir í Reykjanesbæ í nánu samstarfi við íþróttafélög og íbúa. Áhersla verður á:

 

  • Uppbyggingu íþróttamannvirkja.
  • Áframhaldandi hækkun á frístundastyrk.
  • Frístundarútu fyrir öll börn í grunnskóla.
  • Félagsmiðstöðvar í alla grunnskóla.
  • Áframhaldandi styrkingu á 88 húsinu.
  • Stofna til íþrótta- og tómstundasviðs.
 

Við viljum skapa umhverfi þar sem valfrelsi og þátttaka fara saman og tryggja að öll börn hafi raunhæfan kost á að taka þátt. Langtímahugsun og þarfir samfélagsins verða að leiðarljósi.

Húsnæði og skipulag sem styður samfélagið

Við viljum þróa skipulag í Reykjanesbæ með þarfir íbúa og framtíðarsýn að leiðarljósi. Skipulagið á að styðja við sjálfbæra þróun og bæta daglegt líf íbúa. Við viljum:

 

  • Að íbúðakostir séu fjölbreyttir með þarfir ólíkra hópa í huga.
  • Áherslu á lifandi og aðlaðandi hverfi.
  • Góðar samgöngur sem virka.
  • Að græn svæði séu vernduð og viðhaldið.
  • Að ásýnd sveitarfélagsins sé hreinleg og björt.
  • Heildstæða framtíðarsýn þegar kemur að iðnaðarsvæðum.
  • Langtímahugsun í uppbyggingu og viðhaldi á innviðum með reglulegri yfirsýn, ábyrgri eignastýringu og ástandsskoðun á eignum til lengri tíma.
  •  

Nýtum tækifærin

Við ætlum að nýta þau tækifæri sem felast í Reykjanesbæ með því að:

 

  • Byggja upp öflugt atvinnulíf með mannauðnum sem er í sveitarfélaginu.
  • Leggja áherslu á að viðskipti sveitarfélagsins séu í heimabyggð.
  • Auka samráð og stuðning við fyrirtæki í sveitarfélaginu.
  • Leggja áherslu á sterka ímynd sveitarfélagsins með markvissari markaðssetningu.
  • Halda áfram með uppbyggingu Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

 

Við viljum virkja kraft samfélagsins og skapa jarðveg fyrir ný og spennandi tækifæri með nýsköpun og sjálfbærni að leiðarljósi.