Stefna Viðreisnar í Ísafjarðarbæ:
Vor fyrir vestan

Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Sveitarfélög þurfa að taka við börnum um leið og fæðingarorlofi lýkur. Og þá tekur við keðja sem þarf að virka. Frá vel mönnuðum leikskólum, upp í metnaðarfulla grunnskóla. Frá fjölbreyttu íþróttastarfi yfir í félagsmiðstöðvar sem henta mismunandi aldurshópum, þar sem þörfum allra er mætt af fagmennsku og inngilding er í fyrirrúmi. 

*

Það hefur verið jákvæður bragur samstarfs í bæjarstjórn síðastliðið kjörtímabil. Það byggir á því að hlusta og gera málamiðlanir án þess þó að sætta sig við hálfkák. Mörg mál sem höfðu staðið föst voru leyst og unnin áfram í samlyndi. Þessi nálgun þarf að vera áfram.

*

Viðreisn teflir fram reynslumiklum, traustum og fjölbreyttum framboðslista sem kann til verka. Við nálgumst verkefnið af metnaði og jákvæðni, og erum ekki bara tilbúin í verkið, okkur finnst það líka skemmtilegt. Með góðu samtali og skýrri sýn viljum við byggja bæjarfélag sem virkar betur fyrir alla. Fulltrúar Viðreisnar eru öflugir talsmenn bæjarins og svæðisins á landsvísu. 

*

Það er vor hérna fyrir vestan. Viðreisn leggur áherslu á skólamál, jákvæða samvinnu og reynslumikið fólk í komandi kosningum. 

Hér fyrir neðan er stefna okkar í helstu málaflokkum.

Skólamál

Í skólum bæjarins slær hjarta samfélagsins. Framtíð okkar er mótuð í skólastofunni. Ísafjarðarbær er skólabær, með sex leikskóla, fjóra grunnskóla, tvo tónlistarskóla, menntaskóla, lýðskóla, háskóla og fræðslumiðstöð.  Bærinn þarf að tryggja að skólarnir rúmi alla, sé vel við haldið og bjóði upp á öruggt og uppbyggilegt umhverfi.

Við viljum efla aðkomu sérfræðinga í skólunum svo hægt sé að mæta nemendum betur þar sem þeir eru staddir og tryggja að þjónustan sé aðgengileg í heimabyggð og þar með að gera aðgengi raunverulega jafnt fyrir alla, ekki bara þá sem hafa tök á að sækja sér stuðning til Reykjavíkur.

Við ætlum að:

  • Stækka Eyrarskjól og Sólborg, og setja í gang áætlun um fjölgun leikskólakennara í öllum byggðarkjörnum. 
  • Móta og innleiða metnaðarfulla menntastefnu með skýrri aðgerðaáætlun.
  • Setja skýrar reglur um takmarkanir á símanotkun í grunnskólum.

Uppbygging, húsnæði og skipulagsmál

Framundan eru mikil tækifæri til uppbyggingar en íbúðir hafa ekki verið byggðar í takt við þarfir. Það þarf að koma skriði á íbúðauppbyggingu og skapa raunveruleg tækifæri fyrir fólk til að setjast hér að og vaxa með samfélaginu í öllum byggðarkjörnum. Við teljum að sveitarfélagið geti tekið virkari þátt í að koma markaðnum af stað með því að bjóðast til að kaupa félagslegar íbúðir í nýjum fjölbýlishúsum og tryggja þannig að uppbygging verði raunhæf og sjálfbær.

Skipulag skiptir lykilmáli. Við viljum klára aðalskipulagið, hraða vinnu við ný og endurskoðuð svæði og tryggja að þróun byggðar sé skýr, fagleg og í takt við þarfir okkar. Mörg skipulagsmál eru umdeild og nýleg þjónustukönnun sýndi að margt má bæta í málaflokknum. Við erum enn á eftir í viðhaldi í öllum bæjarkjörnum. Klárum nýja slökkvistöð og byrjum að undirbúa gamla slökkvistöðvarreitinn fyrir nýbyggingu.

Við ætlum að:

  • Koma ánægju íbúa með skipulagsmál upp fyrir landsmeðaltal með bættum ferlum.
  • Skipuleggja þéttingarreiti til húsbygginga í öllum byggðarkjörnum.
  • Auka viðhald á eignum Ísafjarðarbæjar, bæta merkingar og fyrirbyggja dýrar skemmdir.

Íþróttir og tómstundir

Íþróttir og tómstundir eru stór þáttur í lífi fólks á svæðinu. Við eigum afreksfólk og afrekslið í mörgum íþróttum, barna- og unglingastarf í enn fleiri greinum og tökum á móti miklum fjölda þátttakenda í íþróttakeppnum árið um kring. Meira svona!

Göngu- og hjólastígar fengu nöfn í fyrra. Við viljum efla aðgengi að útivist og hreyfingu með því að merkja og kynna hjóla, göngu- og hlaupaleiðir um allt sveitarfélagið.

Almenningssamgöngur þurfa að virka betur. Sérstaklega fyrir börn og ungmenni.

Við ætlum að:

  • Skoða hvernig almenningssamgöngur geta betur nýst íbúum, sérstaklega börnum og ungmennum.
  • Efla tómstundastarf og afþreyingarmöguleika fyrir 16–23 ára og auka framboð af afþreyingu utan íþrótta fyrir börn í 5.–10. bekk. Nýtt ungmennaráð leiði stefnumótunina.
  • Undirbúa viðbyggingu við íþróttahúsið á Torfnesi svo þar verði pláss fyrir alla.

Velferð, farsæld og eldri borgarar

Við leggjum áherslu á að innleiða ný lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á málefnasvið. Öll eiga að upplifa sig örugg í sínu umhverfi og fá þjónustu sem þau eiga rétt á. Við viljum að þjónustan mæti raunverulegum þörfum fólks og stuðli þannig að frelsi þjónustuþega, til dæmis þegar kemur að akstursþjónustu bæjarins.

Raddir unga fólksins verða að heyrast, með ungmennaráði geta þau haft vettvang til að taka þátt, hafa áhrif og fundið leiðir með stjórnsýslunni að þeim hugmyndum sem þau hafa fyrir samfélagið okkar og framtíð sína.

Hlúa þarf að aðgengi í víðu samhengi. Upplýsingagjöf er alltaf hægt að auka og auðvelda aðgengi fatlaðs fólks að húsnæði sveitarfélagsins.

Málefni eldri borgara eru okkur sérstaklega hugleikin. Þar skiptir máli að huga að húsnæðismálum, öryggi og lífsgæðum, en einnig að efla félagsstarf enn frekar og skapa tækifæri til virkni og samveru.

Við ætlum að:

  • Endurskoða akstursþjónustu bæjarins.
  • Breyta fjórðu hæðinni á Hlíf í nýjar íbúðir fyrir aldraða.
  • Innleiða farsældarlögin með metnaði.
Ísafjarðarbær-skemmtiferðaskip

Umhverfismál

Umhverfið er grundvöllur góðs lífs á Vestfjörðum. Sumt af því er áberandi en annað ekki. Þannig hefur bærinn farið í kostnaðarsamar fráveituframkvæmdir í öllum kjörnum síðustu misseri og með stórum styrk sem fékkst nýlega getum við náð byltingarkenndum framförum í fráveitumálum. Það þarf að sýna aðhald í sorpmálum og reyna með fjölbreyttum aðferðum að minnka magn sorps sem fer til kostnaðarsamrar urðunar.

Fegra þarf bæi sveitarfélagsins enn frekar. Fyrirkomulag fyrri ára, sérstaklega þegar kemur að vinnuskólanum, er úr sér gengið og það þarf að skoða með opnum huga hvernig við getum haldið götunum og gangstéttunum hreinum, leyft gróðri að vaxa á ákveðnum stöðum en haldið honum í skefjum annars staðar. Suma reiti geta nágrannar tekið í fóstur.  Útisvæði, til dæmis á Suðureyri, Þingeyri og Flateyri, þurfa meiri athygli. Og er ekki kominn tími á slátturóbóta?

Við ætlum að:

  • Bæta ásýnd og umhirðu sveitarfélagsins, meðal annars með því að fjarlægja númerslausa bíla og rusl úr bæjarlandinu á kostnað eigenda þeirra. 
  • Klára fráveituframkvæmdir í öllum kjörnum.
  • Bæta útivistarmöguleika með betri leiksvæðum fyrir börn, göngu- og hjólastígum og fleiri svæðum fyrir hunda. 

Stjórnsýsla og fjármál

Mikið átak hefur verið gert í að koma rekstri bæjarins á réttan kjöl og selja eignir sem ekki var lengur þörf á. Fasteignaskattshlutfallið var lækkað á hverju ári á yfirstandandi kjörtímabili. Sett voru fjárhagsleg markmið í upphafi kjörtímabils sem við höfum staðið við og við eigum að byggja á inn í nýtt kjörtímabil, meðal annars um lækkun skulda. 

Stjórnsýslan þarf að verða rafræn, ferlarnir í stjórnsýslunni einfaldari og afgreiðslutími styttri. Við tökum vel í allar hugmyndir um sameiningu sveitarfélaga. 

Við ætlum að:

  • Passa upp á peninga íbúanna, lækka fasteignaskattshlutfall enn meira og halda áfram að lækka skuldir bæjarins.
  • Tryggja að æðstu stjórnendur bæjarins eigi reglulega vinnudaga í öllum byggðakjörnum.
  • Breyta léni sveitarfélagsins úr isafjordur.is í isafjardarbaer.is.

Atvinnumál og verðmætasköpun

Með stefnu um móttöku skemmtiferðaskipa sem sett var á kjörtímabilinu höfum við tekið stjórnina á gestafjöldanum og náð jafnvægi milli samfélagstekna og sjónarmiða íbúa. Sérstakur sjóður sem styður við menningar- og félagsstarf var stofnaður. Stefnuna þarf að uppfæra á næstu árum. 

Ýmsar hugmyndir eru í farvatninu um uppbyggingu, sem sumar krefjast skipulagsbreytinga hjá bænum. Þá er betra að vanda til verka.

Við styðjum áframhaldandi uppbyggingu umhverfisvæns laxeldis. Við sjáum mikil tækifæri í ferðaþjónustu samfara samgöngubótum á sunnanverðum Vestfjörðum, en viljum líka sjá betri vetrarþjónustu á vegum og að reglulegt innanlandsflug sé tryggt. Við erum óhrædd við að láta í okkur heyra til að hagsmunir Ísafjarðarbæjar og Vestfjarða séu tryggðir. Það þarf að bora meira eftir heitu vatni og stórefla raforkukerfið okkar.   

Við ætlum að:

  • Klára móttökuhús fyrir gesti skemmtiferðaskipa, rafvæða höfnina fyrir skip og stór ökutæki og klára löngu tímabærar framkvæmdir í öllum höfnum sveitarfélagsins.
  • Berjast fyrir umbótum innan fjórðungsins, svo sem með bættum samgöngum, betra raforkukerfi, aukinni notkun jarðhita og hóflegri skattheimtu.

Menning

Menning hefur blómstrað í Ísafjarðarbæ um áraraðir. Bærinn styður við menningu með fjölbreyttum hætti, meðal annars í gegnum skólahald, menningarstofnanir, samstarfssamninga, viðburðahald og styrktarsjóði. 

Hlúa þarf að fjölbreyttri menningar- og safnastarfsemi innan allra byggðakjarna Ísafjarðarbæjar. 

Styrktarsjóður hafna Ísafjarðarbæjar sem stofnaður var á kjörtímabilinu hefur enn frekar aukið menningu í bæjarfélaginu og tryggt fjárhagslega framtíð Aldrei fór ég suður. Við ætlum að stækka sjóðinn enn frekar.

Við ætlum að:

  • Stækka styrktarsjóð hafna Ísafjarðarbæjar  svo menningin og íbúar fái að njóta afrakstursins.
  • Gera tilraun til  að endurvekja skapandi sumarstörf fyrir unglinga. 
  • Gera samstarfsamning við Menningarmiðstöðina Edinborg.
Dynjandi

Viðreisn: Spring in the Westfjords

Spring is in the air. Viðreisn wants to spring into a bright future for Ísafjarðarbær municipality. For the elections coming up on May 16th 2026, Viðreisn is putting forward an experienced, reliable, and broad-based list of candidates who know what they are doing. We enjoy what we do, because we enjoy talking about how our municipality can become even better.

It takes a village to raise a child, and municipalities play a big role there. The towns’ preschools must be ready to enroll children as soon as parental leave ends. And from there on, an unbroken chain must lead children through adolescence. The preschools need to be well-staffed, the primary schools flexible and ambitious, the sports programs diverse and affordable and afterschool activities wholesome and appropriate for different age groups.

The last four years in the town council have been characterised by a positive spirit of cooperation. It is built on listening and making compromises without settling for half-measures. Many issues that had been stuck were resolved. We want to continue on this path. 

About Viðreisn (C)

Viðreisn, list letter C, is a liberal political party that advocates for a just society, a stable economy, Iceland’s participation in the international community, and diverse opportunities.

The top four candidates are:

  1. Dr. Gylfi Ólafsson, health economist and current chair of the executive council of Ísafjarðarbær.
  2. Sif Huld Albertsdóttir, developmental specialist and assistant managing director.
  3. Magnús Einar Magnússon, welder and office manager.
  4. Arnheiður Steinþórsdóttir, historian.

About the elections

Ísafjarðarbær municipality includes Ísafjörður, Flateyri, Suðureyri, Þingeyri and Hnífsdalur. The town council has nine seats. Currently, Í-listinn has five members, the Independence Party (Sjálfstæðisflokkurinn, D) has two and the Progressive Party (Framsóknarflokkurinn, B) has two. Í-listinn, an electoral alliance of Viðreisn, Samfylkingin and Vinstri græn, will not stand for reelection. 

The election takes place on May 16th. Everyone with Icelandic citizenship has the right to vote. Also, all Nordic citizens with domicile in Iceland can as well as residents of other nations that have been registered in Iceland for the last three years. Further information is here.

Viðreisn: Wiosna na Westfjordach

W powietrzu czuć wiosnę. Viðreisn chce zapewnić gminie Ísafjarðarbær świetlaną przyszłość. W nadchodzących wyborach, które odbędą się 16 maja 2026 r., Viðreisn wystawia doświadczonych, rzetelnych i szeroko reprezentowanych kandydatów, którzy wiedzą, co robią. Lubimy to, co robimy, ponieważ lubimy rozmawiać o tym co zrobić aby nasza gmina stała się jeszcze lepsza.

Wychowanie dziecka wymaga zaangażowania całego społeczeństwa  a gminy odgrywają w tym dużą rolę. Miejskie przedszkola muszą być gotowe na przyjęcie dzieci zaraz po zakończeniu urlopu rodzicielskiego. A od tego momentu nieprzerwany łańcuch musi prowadzić dzieci przez okres dojrzewania. Przedszkola muszą być dobrze obsadzone wykształconym personelem, szkoły podstawowe elastyczne i ambitne, programy sportowe zróżnicowane i przystępne cenowo, a zajęcia pozalekcyjne wartościowe i dostosowane do różnych grup wiekowych.

Ostatnie cztery lata w radzie miejskiej charakteryzowały się pozytywnym duchem współpracy. Opiera się on na słuchaniu i kompromisach, bez popadania w półśrodki. Wiele problemów, które utknęły w martwym punkcie, zostało rozwiązanych. Chcemy kontynuować tę drogę.

O Viðreisn (C)

Viðreisn, litera C, to liberalna partia polityczna, która opowiada się za sprawiedliwym społeczeństwem, stabilną gospodarką, udziałem Islandii we wspólnocie międzynarodowej i różnorodnymi możliwościami.

Czterech głównych kandydatów to:

  1. Dr. Gylfi Ólafsson, ekonomista zdrowia i obecny przewodniczący rady wykonawczej Ísafjarðarbær.
  2. Sif Huld Albertsdóttir, specjalistka ds. rozwoju i zastępczyni dyrektora zarządzającego.
  3. Magnús Einar Magnússon, spawacz i kierownik biura.
  4. Arnheiður Steinþórsdóttir, historyczka.

O wyborach

Gmina Ísafjarðarbær obejmuje Ísafjörður, Flateyri, Suðureyri, Þingeyri i Hnífsdalur. Rada miejska liczy dziewięć miejsc. Obecnie Í-listinn ma pięciu członków, Partia Niepodległości (Sjálfstæðisflokkurinn, D) ma dwóch, a Partia Postępowa (Framsóknarflokkurinn, B) ma dwóch. Í-listinn, koalicja wyborcza Viðreisn, Samfylkingin i Vinstri græn, nie będzie ubiegać się o reelekcję.

Wybory odbędą się 16 maja. Prawo do głosowania przysługuje wszystkim obywatelom islandzkim. Prawo do głosowania przysługuje również wszystkim obywatelom krajów nordyckich zamieszkałym na Islandii, a także mieszkańcom innych krajów, którzy są zarejestrowani w Islandii od trzech lat. Więcej informacji znajdziesz tutaj .