Afmælishátíð Viðreisnar

Afmælishátíð Viðreisnar

When

24/05    
11:00 - 13:30

Bookings

Bookings closed

Where

Þjóðhátíðarlundur
Heiðmörk, Reykjavík

Event Type

Viðreisn er fjögurra ára! Við ætlum að fagna afmælinu saman í Heiðmörk og koma saman í Þjóðhátíðarlundi kl. 11.00. Gert er ráð fyrir að  dagskrá verði til 13.30 með gróðursetningu, grilli og leikjum. 

 

Eins og í fyrra fögnum við tilvist flokksins okkar með því að láta gott af okkur leiða. Viðreisn hefur tekið landspildu undir Hulduklettum í fóstur til framtíðar og þennan dag hefst uppbygging lundarins okkar með fyrstu gróðursetningunni. 

 

Þetta verður afmælisfögnuður fyrir alla fjölskylduna, svo klæðum okkur eftir veðri, komið með börnin og barnabörnin og skemmtum okkur saman. 

 

Svo hægt verði að skipuleggja daginn sem best, með leiðbeiningar Almannavarna í huga, er þess óskað að þið skráið ykkur hér fyrir neðan, í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 22. maí, þar sem þið takið fram fjölda fullorðinna og barna sem munu mæta.

 

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og fagna með ykkur fjórum frábærum árum. Á þessum stutta tíma höfum við sannarlega sýnt erindi Viðreisnar og hversu brýnt það er að hafa sterka rödd sem heldur uppi mikilvægi frjálslyndis og réttlætis og ekki síst, stendur vörð um almannahagsmuni en ekki sérhagsmuni.

 

Google Maps staðsetning er hér

Bookings

Bookings are closed for this event.