Er eitt­hvað að fela?

Þegar starfað er í stjórnmálum skiptir miklu máli að taka hlutverk sitt alvarlega. Ekki síst til að ýta undir nauðsynlegt traust og langþráð gegnsæi í íslenskri stjórnsýslu. Sumir stjórnmálaflokkar hafa í grunnstefnu sinni að tryggja að almannahagsmunir séu í fyrirrúmi, að farið sé vel með almannafé og að gegnsæi ríki í ákvarðanatöku stjórnvalda. Þannig myndast traust á milli kjósenda og kjörinna fulltrúa enda er það forsenda heilbrigðs samfélags. Aðrir stjórnmálaflokkar virðast hins vegar hafa þá vinnureglu að reyna eftir fremsta megni að torvelda aðgengi almennings að upplýsingum, svara illa fyrirspurnum um framgang mála og finnast gagnsæi vera hálfgert vesen. Gleðispillir jafnvel.

Í Garðabæ hefur verið tekin ákvörðun um uppbyggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýrinni. Sem er mjög jákvætt og gott skref að okkar mati. Garðbæingar eru stoltir af Stjörnunni enda framúrskarandi lið og einstaklingar á ferð, hvort sem litið er til boltaíþrótta eða fimleika. Nú berast fregnir af því að áform um uppbyggingu í Vetrarmýrinni standist ekki, framkvæmdin mun vera flóknari en fyrr var talið. Það sé snúið mál að byggja í mýri og eitthvað í þeim dúr. Eins og það hafi átt að koma á óvart. Gott og vel. Það sem er hins vegar bagalegt er að meirihlutinn í bæjarstjórn Garðabæjar þráast við að veita minnihlutanum upplýsingar. Bæjarstjórnarmeirihlutinn lítur á beiðni minnihlutans sem ákveðið vesen, en það er lýsandi fyrir viðhorf meirihlutans til leikreglna lýðræðisins. Einföldum spurningum um raunverulegan framgang verkefnisins er vart svarað og meirihlutinn sýnir lítið frumkvæði í að greiða fyrir aðgengi minnihlutans og þar með almennings að upplýsingum um framkvæmdina. Og þetta er ekki einhver smáframkvæmd. Um er að ræða gríðarlega fjárfestingu af hálfu bæjarins um að minnsta kosti 4,5 milljarða króna. Framkvæmdin er fjármögnuð að hluta til beint úr bæjarsjóði en að stórum hluta af lóðasölu (sem ekki er enn vitað hvort gangi upp) og frekari lántöku.

Það er auðvitað kappsmál okkar allra að vel takist til.  Enda íþrótta- og tómstundastarf mikilvægara sem aldrei fyrr. En það hefur verið merkilegt að fylgjast með því hversu viðkvæmt það er fyrir meirihlutann að koma hreint fram og veita einfaldar upplýsingar. Því hljótum við að staldra við og spyrja okkur hvers vegna svo sé. Það er eðli stjórnmálanna að þeir sem eru í minnihluta veita aðhald og spyrja spurninga; þeir sem eru í meirihluta eiga að axla ábyrgð á ákvörðunum sínum og standa með þeim. Það verða alltaf álitamál sem leysa þarf og heilbrigt er að eiga samtal um. Við það á enginn að vera feiminn. En það leysir engan vanda að stinga höfðinu í sandinn og bíða af sér óþægindin.

Slík stjórnun er varla í þágu almennings. Betra væri að koma hreint fram gagnvart íbúum Garðabæjar og að lágmarki svara eðlilegum spurningum um framvindu mikilvægra verkefna. Það er ekkert að fela. Eða hvað?

Sara Dögg er oddviti Garðabæjarlistans og Þorgerður Katrín formaður Viðreisnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 28. janúar 2020