Traustið og áhrifin

Þetta gengur yfir. Það er það sem við vitum og bíðum öll eftir. Við erum öll að leggja okkar af mörkum. Hvert og eitt okkar. Það er í aðstæðum sem þessum sem við finnum svo áþreifanlega hversu miklu máli skiptir hvernig við sem einstaklingar bregðumst við. Hvaða áhrif við höfum í raun og veru, sem í amstri daganna virðist frekar óljóst og óáþreifanlegt. Það eitt og sér ætti að styrkja okkur, valdefla okkur sem einstaklinga og vera okkur hvatning til þess að láta til okkar taka í þágu samfélagsins.

Núna en líka seinna.

Mennskan ræður för. Ég trúi því að þessi óumbeðni veruleiki sem reynir á okkur skili okkur einfaldlega sem betri manneskjum aftur út í samfélagið. Þar sem við virkjum mennskuna í okkur öllum og förum að hlúa betur að mjúku málunum. Velferð einstaklinganna í þágu þroskaðra samfélags sem getur haldið áfram að þróast í samvinnu og trausti.

Traust er svo ótrúlegt tæki til valdeflingar. Við tökum eftir því hvernig við setjum allt á traust á þær mikilvægu aðgerðir sem við beitum til að vinna gegn ástandinu. Þau sem gefa okkur tilmælin segja okkur hvað er best að gera og þau treysta því að við gerum nákvæmlega það og ekkert annað. Og það er að virka. Magnað.

Æfingin skapar meistarann. Nú þegar við æfum okkur í þessu mikilvæga trausti gefur það okkur svo frábært tækifæri til að taka þá lexíu með okkur inn í öll þau verkefni sem bíða okkar í samfélaginu. Til þess að ná alla leið verðum við að vera heiðarleg og einlæg í samskiptum og vinda ofan af öllum snúningum um það sem engu skiptir. Veðjum á mennskuna og mjúku málin. Við getum alltaf bætt okkur sem manneskjur og gert þannig samfélagið okkar betra. Góðar manneskjur láta sig varða um lífsgæði annarra og styðja þá sem á þurfa að halda og efla þannig samfélag allra.

Valdefling einstaklingsins er hverju samfélagi dýrmæt. Ég vona að æfingin í traustinu og krafturinn sem við finnum, þegar við tökum því hlutverki okkar af ábyrgð að vera hvert og eitt almannavarnir, leiði okkur á enn betri stað. Til enn meiri samstöðu og kjarks til að takast á við verkefni samfélagsins, öllum til hagsbóta.

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans í Garðabæ.

Greinin birtist fyrst á Vísi 28. mars 2020