Lýðræði í sóttkví

Stefanía Reynisdóttir

Á tímum heimsfaraldurs sökum nýrrar tegundar kórónaveiru hefur margt í okkar daglega lífi þurft að taka breytingum. Aðgerðir á sviði heilbrigðis- og efnahagsmála eru hvað helst eftirtektarverðar og því hafa fylgt takmarkanir á skólahaldi, starfsemi vinnustaða og öðrum samkomum samfélagsins. Aðgerðir þessar hafa miðað að því að bjarga lífum, vernda afkomu og efnahaginn.

Annar þáttur sem þarfnast ekki síður verndar, er lýðræðið. Þegar neyðarúrræði eru rædd verða stjórnvöld að virða lýðræðislegar venjur um réttarríki og gagnsæi. Sérlega þegar setja á miklar takmarkanir á grunnfrelsi okkar verður þar að baki að standa breiður lýðræðislegur stuðningur.

Því miður erum við strax að sjá sumar ríkisstjórnir heims nýta sér tækifærið í skugga kórónaveirunnar til að brjóta gegn þessum réttindum sem lýðræði tryggir okkur.

Í skugga kórónaveiru

Í Póllandi hyggst stjórnarflokkurinn Lög og Réttindi (PiS) misnota ástandið í landinu til að koma í gegn frumvarpi um bann á þungunarrofi, en löggjöf þess efnis í landinu er nú þegar ströng. Seinast þegar bann á þungunarrofi var rætt í þinginu urðu mikil mótmæli til þess að hætt var við bannið. Nú þegar strangar reglur eru um samkomubann sem hafa áhrif á skipulögð mótmæli fólks, hyggst ríkisstjórnin lauma banninu í gegn. Ríkisstjórn Póllands grefur enn frekar undan lýðræði með þeim áformum að halda forsetakosningar í maí, þegar almenningur hefur ekki greiðan aðgang að frambjóðendum hvað þá kjörstað. Ríkjandi forseti Andrzej Duda nýtir því ástandið til að styrkja eigin stöðu. Ríkisstjórnin breytti einnig kosningarlögum með minna en 6 mánaða fyrirvara og gerðist því sek um brot á stjórnarskrá Póllands.

Í Ungverjalandi er svipuð saga upp á teningnum. Ungverska þingið hefur samþykkt neyðarlög sem færa forsætisráðherranum, Viktor Orbán, allt þingvald og þar með leyfi til að stjórna landinu með tilskipunum ótímabundið. Lögin voru samþykkt af stjórnarmeirihluta Orbáns og fela í sér ákvæði um upplýsingafals sem vel geta verið notuð til að refsa fyrir gagnrýna fréttaumfjöllun. Lýðræðislegt eftirlit með aðgerðum stjórnvalda hefur einnig verið afnumið. Er þetta ekki í fyrsta skiptið sem Orbán vegur að frjálslyndum öflum og réttindum í landinu.

Þessar aðgerðir gera ekkert til að stöðva kórónaveirufaraldurinn, heldur stappa þær niður gagnrýnendur, andstöðu og tjáningarfrelsi. Þessar ríkisstjórnir ryðja veginn fyrir lögum og reglum sem víkja lýðræðislega kosnum þingum úr vegi. Þær þagga niður í andstæðingum sínum og fjarlæga mannréttindi um frjálsa fjölmiðlun.

Stöndum vörð um frjálslyndi

Þegar atlaga er gerð að frjálslyndum lýðræðislegum réttindum fólks í skjóli nætur er mikilvægt að við stöndum saman gagnvart þeim sem misnota aðstöðu sína á umbrotatímum. Við megum ekki sofna á verðinum. Lýðræði og mannréttindi geta ekki farið í sóttkví.

Höfundur er alþjóðafulltrúi Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 15. apríl 2020