Fjöl­skyldan fari saman í sumar­frí

Skráningu í sumarleikskóla Reykjavíkur lýkur föstudaginn 26. mars. Líkt og undanfarin ár geta foreldrar leikskólabarna í Reykjavík valið hvenær fjölskyldan tekur sumarfríið sitt saman, með sumaropnun eins leikskóla í hverju hverfi borgarinnar. Eins og fram kom í nýlegri viðhorfskönnun meðal foreldra, eru 97% þeirra mjög eða frekar ánægðir með framkvæmd sumarleikskóla undanfarin tvö ár.

Fjölskyldan fari saman í frí

Almennt þarf sumarorlof að dreifast yfir alla sumarmánuðina. Það getur því skapað heilabrot fyrir fjölskyldur að þurfa skipuleggja sig í kringum lokun leikskóla í júlí. Það er því að mínu mati mikið jafnréttismál að geta valið hvenær farið er í sumarfrí með börnin sín og því eru sumarleikskólarnir mikið framfaraskref.

Margir foreldrar geta tekið sumarorlof í júlí og velja að vera í leyfi á meðan leikskólinn er lokaður. Júlí er enda vinsælasti sumarleyfismánuðurinn. En það eru ekki allir foreldrar sem geta skipulagt sig þannig. Þeir þyrftu því að leggjast yfir flókið púsluspil til að tryggja barninu sínu örugga vistun þar til foreldrarnir komast í frí, ef ekki væri fyrir sumarleikskóla. Það eru ekki allir foreldrar með sterkt bakland til að leita til, afa og ömmur eða skyldfólk sem er tilbúið til að passa krílin.

Opnun sumarleikskóla var eitt af fjölmörgum stefnumála Viðreisnar sem samþykkt voru í meirihlutasáttmála 2018. Viðtökurnar við þessari auknu þjónustu hafa verið mjög góðar. Við vitum að það eru ekki allir foreldrar í sömu aðstæðum og það er mikilvægt að mæta mismunandi þörfum borgarbúa með því að gefa þeim val – frelsi til að skipuleggja sumarfríið á sínum forsendum.

Sex sumarleikskólar

Alls verða sex leikskólar opnir í allt sumar, einn í hverju hverfi borgarinnar. Foreldrar barna sem eru ekki í einum af þessum sex leikskólum geta óskað eftir því að börnin flytjist yfir í sumarleikskóla á meðan þeirra skóli er lokaður. Starfsmenn frá leikskóla barnanna flytjast einnig yfir á sumarleikskólann.

Þeir leikskólar sem verða opnir í allt sumar eru:

  • Bakkaborg í Breiðholti
  • Drafnarsteinn í Vesturbæ
  • Engjaborg í Grafarvogi
  • Langholt í Laugardal/Háaleiti
  • Maríuborg í Árbæ/Grafarholti og
  • Stakkaborg í Miðborg/Hlíðum

Öll leikskólabörn í Reykjavík þurfa að taka 20 virka daga samfleytt í sumarleyfi. Í sérhverjum leikskóla, utan þeirra sex sem verða opnir í allt sumar, er sumarlokun ákveðin í samráði við foreldraráð og að undangenginni könnun meðal foreldra. Skráning í sumarleikskóla fer fram í öllum leikskólum borgarinnar.

Njótum sumarleyfisins með fjölskyldunni þegar við viljum fara í sumarleyfi. Sumarleyfið þarf ekki að stýrast af því hvenær leikskólinn fer í frí.

Höfundur er fulltrúi Viðreisnar í Skóla- og frístundaráði Reykjavíkur.

Greinin birtist fyrst á Vísi 24. mars 2021