Þegar bara „rétta” skoðunin er leyfð

Það vakti athygli fótboltaáhugamanna nýverið að fjölnota íþróttahús sem nú rís í Garðabænum hafi ekki verið hugsað sem löglegur keppnisvöllur og vantar til þess upp á lofthæð. Veruleiki sem kom á óvart í “bransanum” en frá upphafi lá fyrir að svo yrði ekki.

Mannlíf fjallaði um málið og óskaði eftir áliti mínu. Frá því ég tók sæti í bæjarstjórn fyrir þremur árum síðan hef ég gagnrýnt þá ákvörðun að farin væri dýrasta leiðin til að tryggja íþróttaiðkendum gott æfingahúsnæði. Framkvæmd sem í grunninn kostar tæpa 5 milljarða. Án tækja og tóla. Án fullbúinnar aðstöðu eða áætlunar um hvernig skipuleggja eigi þá 3 þúsund fermetra sem eru fyrir utan fótboltavölllinn sjálfan. Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans hafa ekki komið að þessari ákvörðun og hafa hingað til ekki samþykkt fjárhagsáætlanir meirihlutans þar sem framkvæmdinni er tryggt fjármagn

Mér var bæði ljúft og skylt að gefa mitt álit á málinu. Fyrst á annað borð var farið í að reisa glæsilega íþróttahöll, af hverju var ekki farið alla leið og húsið búið þannig að möguleikinn væri fyrir hendi. Bæjarstjóri hefur oft nefnt að húsinu sé ætlað er að endast næstu hundrað árin eða svo. Væri þá ekki tilvalið að byggja einmitt til framtíðar?

Bara sumir mega tjá sig í Garðabæ

Það fellur ekki vel í Sjálfstæðismenn í bænum mínum að ég skuli hafa tjáð mig opinberlega um skoðanir mínar. Yfir því verða þeir sárir og gramir. Þeir eru nefnilega vanir því að fá öllu ráðið, með klapplið í kring um sig. Bæjarstjórinn mætti með hroka og yfirlæti í Bítið á Bylgjunni til að “leiðrétta bullið” í bæjarfulltrúanum mér. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarráði bókaði svo um málið í þessari viku og segir ummæli mín ámælisverð. Hvorki meira né minna. Önnur skoðun en hans eigin og félaga hans er, að hans mati, ámælisverð. Þannig virkar þetta í lýðræðissamfélaginu Garðabæ. Þegar Sjálfstæðismenn stýra málum.

Ég mun samt sem áður halda áfram að gagnrýna undarlega forgangsröðun á skattfé Garðbæinga í fjárfreka framkvæmd og jafnvel velta fyrir mér hversu tímalaus fjölnota íþróttahúsið mun reynast. Það er vissulega mín skoðun, þó svo að hún sé að mati félaga minna í Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ ámælisverð, takk fyrir pent.

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans í Garðabæ.

Greinin birtist fyrst á vísi 7. júlí 2021