Gefðu fram­tíðinni tæki­færi

Á morgun göngum við til kosninga. Það er mikilvægt að kjósendur séu meðvitaðir um þau framboð sem standa þeim til boða ásamt þeim málefnum sem flokkarnir leggja á oddinn. Í Viðreisn er fjöldinn allur af ungu fólki í framboði og sem kom að stofnun flokksins, það endurspeglast í stefnu Viðreisnar. Skilaboð okkar eru skýr:

Viðreisn er frjálslyndur flokkur sem gefur ekki afslátt af geðheilbrigðismálum, loftslagsmálum, jafnréttismálum og hagsmunum ungs fólks.

Við, unga fólkið í framboði, völdum Viðreisn vegna þess að á okkur er hlustað og stefnumál flokksins einkennast af áherslum frjálslynds ungs fólks. Flokkurinn er sér á báti varðandi frelsismál, jafnréttismál, geðheilbrigðismál, menntamál og loftslagsmál.

Flokkurinn hefur barist fyrir niðurgreiddri sálfræðiþjónustu og mun halda því áfram þar til niðurgreiðslan verður fjármögnuð. Við höfum endurskilgreint nauðgun í hegningarlögum þannig lögin svari kalli samfélagsins um mikilvægi samþykkis. Komið í gegn jafnlaunavottun. Talað máli flóttafólks og námsmanna á þingi. Flokkurinn ætlar að taka stærri skref í umhverfis- og loftslagsmálum en tekin hafa verið.

Viðreisn berst fyrir auknu jafnrétti hinsegin fólks svo Ísland verði þar fremst í flokki, námslánakerfi að norrænni fyrirmynd, tengingu Íslands við alþjóðasamfélagið og samfélagi sem byggir á frjálslyndi, þar sem fólki er treyst fyrir eigin ákvörðunum.

Stjórnmál eiga að snúast um að bæta samfélagið, brjóta niður múra og skapa aukið frelsi fyrir fólk þvert á landamæri. Þau snúast um að treysta einstaklingnum og veita honum tækifæri til að rækta eigin hæfileika og tryggja að þörfum hans sé mætt. Byggja á upp gott öryggisnet sem grípur fólk þegar það villist af leið eða þarf aðstoð.

Við viljum færa okkur frá kyrrstöðunni og bjóða þér að kjósa flokk sem leggur áherslu á það sem skiptir máli. Flokk sem hlustar á ungt fólk og tekur skref í samræmi við það.

Gefðu framtíðinni tækifæri, kjóstu Viðreisn.

Höfundar eru ungir frambjóðendur Viðreisnar á landsvísu.

  • Starri Reynisson, 3. sæti í Norðvesturkjördæmi og forseti Uppreisnar
  • Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, 3. sæti í Reykjavík norður
  • María Rut Kristinsdóttir, 3. sæti í Reykjavík suður
  • Elín Anna Gísladóttir, 3. sæti í Suðvesturkjördæmi
  • Ingvar Þóroddsson, 3. sæti í Norðausturkjördæmi
  • Ingunn Rós Kristjánsdóttir, 4. sæti í Norðvesturkjördæmi
  • Elva Dögg Sigurðardóttir, 4. sæti í Suðurkjördæmi
  • Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, 4. sæti í Reykjavík suður
  • Draumey Ósk Ómarsdóttir, 4. sæti í Norðausturkjördæmi
  • Axel Sigurðsson, 5. sæti í Suðurkjördæmi
  • Ástrós Rut Sigurðardóttir, 5. sæti í Suðvesturkjördæmi
  • Rafn Helgason, 6. sæti í Suðvesturkjördæmi
  • Edit Ómarsdóttir, 6. sæti í Norðvesturkjördæmi
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, 6. sæti í Suðurkjördæmi
  • Arnar Páll Guðmundsson, 7. sæti í Suðurkjördæmi
  • Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, 8. sæti í Norðausturkjördæmi
  • Alexander Aron Guðjónsson, 9. sæti í Norðvesturkjördæmi
  • Jóhann Karl Ásgeirsson, 11. sæti í Suðurkjördæmi
  • Aðalbjörg Guðmundsdóttir, 11. sæti í Reykjavík norður
  • Ívar Marinó Lilliendahl, 12. sæti í Suðvesturkjördæmi
  • Emilía Björt Írisardóttir, 13. sæti í Reykjavík norður
  • Kristín Hulda Gísladóttir, 13. sæti í Reykjavík suður
  • Aron Eydal Sigurðarson, 14. sæti í Reykjavík suður
  • Kristján Ingi Svanbergsson, 14. sæti í Reykjavík norður
  • Þuríður Elín Sigurðardóttir, 15. sæti í Reykjavík norður
  • Reynir Hans Reynisson, 16. sæti í Reykjavík suður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, 17. sæti í Reykjavík suður
  • Jón Gunnarsson, 18. sæti í Suðvesturkjördæmi
  • Sveinbjörn Finnsson, 18. sæti í Reykjavík norður
  • Gréta Sóley Arngrímsdóttir, 18. sæti í Norðausturkjördæmi
  • Margrét Ósk Gunnarsdóttir, 19. sæti í Reykjavík suður
  • Geir Finnsson, 20. sæti í Reykjavík suður

Greinin birtist fyrst á Vísi 24. september 2021