24 sep Gefðu framtíðinni tækifæri
Á morgun göngum við til kosninga. Það er mikilvægt að kjósendur séu meðvitaðir um þau framboð sem standa þeim til boða ásamt þeim málefnum sem flokkarnir leggja á oddinn. Í Viðreisn er fjöldinn allur af ungu fólki í framboði og sem kom að stofnun flokksins, það endurspeglast í stefnu Viðreisnar. Skilaboð okkar eru skýr:
Viðreisn er frjálslyndur flokkur sem gefur ekki afslátt af geðheilbrigðismálum, loftslagsmálum, jafnréttismálum og hagsmunum ungs fólks.
Við, unga fólkið í framboði, völdum Viðreisn vegna þess að á okkur er hlustað og stefnumál flokksins einkennast af áherslum frjálslynds ungs fólks. Flokkurinn er sér á báti varðandi frelsismál, jafnréttismál, geðheilbrigðismál, menntamál og loftslagsmál.
Flokkurinn hefur barist fyrir niðurgreiddri sálfræðiþjónustu og mun halda því áfram þar til niðurgreiðslan verður fjármögnuð. Við höfum endurskilgreint nauðgun í hegningarlögum þannig lögin svari kalli samfélagsins um mikilvægi samþykkis. Komið í gegn jafnlaunavottun. Talað máli flóttafólks og námsmanna á þingi. Flokkurinn ætlar að taka stærri skref í umhverfis- og loftslagsmálum en tekin hafa verið.
Viðreisn berst fyrir auknu jafnrétti hinsegin fólks svo Ísland verði þar fremst í flokki, námslánakerfi að norrænni fyrirmynd, tengingu Íslands við alþjóðasamfélagið og samfélagi sem byggir á frjálslyndi, þar sem fólki er treyst fyrir eigin ákvörðunum.
Stjórnmál eiga að snúast um að bæta samfélagið, brjóta niður múra og skapa aukið frelsi fyrir fólk þvert á landamæri. Þau snúast um að treysta einstaklingnum og veita honum tækifæri til að rækta eigin hæfileika og tryggja að þörfum hans sé mætt. Byggja á upp gott öryggisnet sem grípur fólk þegar það villist af leið eða þarf aðstoð.
Við viljum færa okkur frá kyrrstöðunni og bjóða þér að kjósa flokk sem leggur áherslu á það sem skiptir máli. Flokk sem hlustar á ungt fólk og tekur skref í samræmi við það.
Gefðu framtíðinni tækifæri, kjóstu Viðreisn.
Höfundar eru ungir frambjóðendur Viðreisnar á landsvísu.
- Starri Reynisson, 3. sæti í Norðvesturkjördæmi og forseti Uppreisnar
- Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, 3. sæti í Reykjavík norður
- María Rut Kristinsdóttir, 3. sæti í Reykjavík suður
- Elín Anna Gísladóttir, 3. sæti í Suðvesturkjördæmi
- Ingvar Þóroddsson, 3. sæti í Norðausturkjördæmi
- Ingunn Rós Kristjánsdóttir, 4. sæti í Norðvesturkjördæmi
- Elva Dögg Sigurðardóttir, 4. sæti í Suðurkjördæmi
- Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, 4. sæti í Reykjavík suður
- Draumey Ósk Ómarsdóttir, 4. sæti í Norðausturkjördæmi
- Axel Sigurðsson, 5. sæti í Suðurkjördæmi
- Ástrós Rut Sigurðardóttir, 5. sæti í Suðvesturkjördæmi
- Rafn Helgason, 6. sæti í Suðvesturkjördæmi
- Edit Ómarsdóttir, 6. sæti í Norðvesturkjördæmi
- Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, 6. sæti í Suðurkjördæmi
- Arnar Páll Guðmundsson, 7. sæti í Suðurkjördæmi
- Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, 8. sæti í Norðausturkjördæmi
- Alexander Aron Guðjónsson, 9. sæti í Norðvesturkjördæmi
- Jóhann Karl Ásgeirsson, 11. sæti í Suðurkjördæmi
- Aðalbjörg Guðmundsdóttir, 11. sæti í Reykjavík norður
- Ívar Marinó Lilliendahl, 12. sæti í Suðvesturkjördæmi
- Emilía Björt Írisardóttir, 13. sæti í Reykjavík norður
- Kristín Hulda Gísladóttir, 13. sæti í Reykjavík suður
- Aron Eydal Sigurðarson, 14. sæti í Reykjavík suður
- Kristján Ingi Svanbergsson, 14. sæti í Reykjavík norður
- Þuríður Elín Sigurðardóttir, 15. sæti í Reykjavík norður
- Reynir Hans Reynisson, 16. sæti í Reykjavík suður
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, 17. sæti í Reykjavík suður
- Jón Gunnarsson, 18. sæti í Suðvesturkjördæmi
- Sveinbjörn Finnsson, 18. sæti í Reykjavík norður
- Gréta Sóley Arngrímsdóttir, 18. sæti í Norðausturkjördæmi
- Margrét Ósk Gunnarsdóttir, 19. sæti í Reykjavík suður
- Geir Finnsson, 20. sæti í Reykjavík suður