Fleiri valkostir í Reykjavík

Þegar Reykjavík óx sem hraðast á seinustu öld og breyttist úr smábæ í borg trúði fólk á einkabílinn sem allsherjar samgöngulausn. Og vissulega er einkabíllinn þægilegur og gagnlegur og gerir okkur kleift að ferðast hvenær og hvert sem er. Ég á einn slíkan og nota öðru hvoru. En borgir sem taka mið af því að allir ferðist á bílum verða að borgum þar sem allir þurfa að ferðast á bílum. Og þær fyllast af bílum. Fleiri og fleiri stærri sem smærri borgir í löndum í kringum okkur hafa því unnið að því að fjölga öðrum valkostum í samgöngum og takmarka bílaumferð þar sem því verður við komið. Borgarlínan er slíkur viðbótar valkostur.

Ekki bara samgöngutæki

En Borgarlínan er ekki bara samgöngutæki, þægilegri strætó, heldur mjög mikilvægur þáttur í skipulagi. Þannig liggur fyrir nýtt og metnaðarfullt skipulag á fjölmennu og flottu hverfi á Ártúnshöfða sem verður beintengt við miðbæinn, og háskólana báða með Borgarlínu. Línan fer í gegnum nýja Vogahverfið og fram hjá Skeifusvæðinu sem hefur mikla möguleika til spennandi þróunar. Það mun auðvelda íbúum nýja hverfisins að ferðast með öðrum hætti en bíl og þýðir að hverfið sjálft má skipuleggja þannig að ekki þurfi jafn mikið pláss undir mannvirki tengdum bílum og bílaumferð. Þannig fæst þétt byggt en samt rólegt hverfi með grænum svæðum og vistlegum almenningsrýmum. Þaðan mun svo Borgarlínan liggja áfram til austurs upp í Keldnaholt þar sem annað nýtt hverfi mun rísa, með blandaðri byggð atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Þannig er tryggt strax í upphafi að Borgarlínan komist greitt beint í gegnum hin nýju hverfi og mestur þéttleiki og þjónusta höfð meðfram línunni. Hinn valkosturinn, að brjóta land í jaðri byggðar undir ný en hefðbundin úthverfi, myndi skapa mun meiri heildarumferð enda myndi byggð dreifast enn meira og ný hverfi byggjast þar sem erfitt er að bjóða nærþjónustu og góðar almenningssamgöngur.

Skynsöm og fagleg nálgun

Með nýrri heildarhugsun í skipulagi er fleirum gert kleift að sleppa því að eiga bíl, eða að fækka bílum á heimili og þeir sem eiga bíl geta sleppt því að nota bílinn alla daga í og úr vinnu. Þetta eru ekki öfgar, langt í frá, heldur einfaldlega skynsöm og fagleg nálgun sem skapar betri borg. Viðreisn styður Borgarlínu og hefur í borgarstjórn greitt götu þess verkefnis síðastliðið kjörtímabil með öðrum mikilvægum skipulagsverkefnum, sem meðal annars hefur skilað metfjölda fullgerðra íbúða sl. þrjú ár. Við í Viðreisn höfum á stefnuskrá okkar að tryggja á næsta kjörtímabili lóðir fyrir í það minnsta 2000 nýjar íbúðir á ári. Borgarlínan er tromp í metnaðarfullu framtíðarskipulagi borgarinnar. Þannig verður borgin áfram eftirsóttur staður fyrir næstu kynslóðir og getur þróast sem öflug, sjálfbær, falleg og skemmtileg borg.

Höfundur skipar 16. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík.

Greinin birtist fyrst á Vísi 29. apríl 2022.