Þú átt 5.741.000 kr.

Já þú last þetta rétt. Sem Reykvíkingur átt þú tæpar sex milljónir króna. Þær eru samt ekkert í vasanum þínum eða heimilisbókaldinu, þó svo að það geti hentað mér að setja þetta svona fram til að ná athygli þinni. Ekkert frekar en að þú finnir fyrir skuldum Reykjavíkurborgar á eigin skinni, líkt og stjórnarmeðlimur SUS vildi meina í grein sinni á Vísi fyrr í vikunni.

Reykjavíkurborg á, fyrir hvern íbúa, tæpar 2,7 milljónir í eignum umfram skuldir og stendur vel. Það er fyrir samstæðuna alla. Minnihlutinn vill síður tala um borgarsjóð, aðalsjóð borgarinnar. Þann hluta Reykjavíkurborgar sem er ekki fyrirtæki, heldur veitir okkur þjónustu og er greiddur af okkur skattgreiðendum. Í þeim samanburði er nefnilega Reykjavíkurborg með lægsta skuldahlutfallið á höfuðborgarsvæðinu. Hin sveitarfélögin, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Seltjarnarnes og Mosfellsbær (þið vitið, þessi sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrir) hafa öll hærra skuldahlutfall bæjarsjóðs en Reykjavík. Svo er skuldahlutfall ríkissjóðs meira en tvöfalt á við borgina, og hver stýrir aftur fjármálaráðuneytinu?

Veskin okkar eru ekki beintengd fjárreiðum sveitarfélaganna. Það sem skiptir þar mestu er hvort við fáum nærþjónustu. Skuldir borgarinnar koma ekki í veg fyrir að borgin geti sinnt sínu lögbundna þjónustuhlutverki, lækkað skatta og eflt innviði eins og gert hefur verið á þessu kjörtímabili. Staðan þyrfti að vera miklum mun verri til að svo væri. Að benda á skuldir fyrirtækja í eigu borgarinnar án þess að nefna eignir og veltu þeirra, og að láta eins og þær hafi áhrif á lífsskilyrði borgarbúa, er meira en bara villandi framsetning. Það eru hrein ósannindi.

Af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu er skuldastaða a-hluta rekstrarins, sem sér um þjónustu við almenning, best í Reykjavík. Hún er kannski ekki frábær, en hún er engu að síður eðlileg í ljósi þeirrar miklu uppbyggingar sem borgin hefur staðið í, þar sem fjárfest er í stafrænni þjónustu, endurbyggingu á skólum og byggingu á sundlaugum og íþróttamannvirkjum. Fyrir borg í vexti, líkt og Reykjavík er, er ákveðin skuldsetning mikilvæg.

Að auki er hægt að horfa til þeirrar þjónustu sem borgin veitir og leiðir til þess að fólk sem þarf á þjónustu á halda flytur til Reykjavíkur, vegna þjónustuskorts í nágrannasveitarfélögum (sjá hlutfall félagslegra íbúða o.fl.), og þess að borgin heldur öðrum sveitarfélögum uppi með framlögum í Jöfnunarsjóð.

Sé horft á heildarmyndina er staðan mjög góð, sérstaklega í samanburði við nágrannanna. Borgin veitir meiri þjónustu en önnur sveitarfélög og stóð að mikilli innspýtingu í heimsfaraldrinum. Á liðnu kjörtímabili var metuppbygging íbúða í Reykjavík, en síðustu ár var um helmingur allrar uppbyggingar í landinu í Reykjavík þótt aðeins þriðjungur þjóðarinnar búi í borginni.

Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst mikilvægt að búa í mannvænni, aðgengilegri og grænni borg þar sem fjármunum er viturlega varið í mikilvæga innviði og ábyrga fjárfestingu. Fyrir því hefur Viðreisn beitt sér í borgarstjórn og það munum við áfram gera.

Höfundur skipar 7. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík og er forseti Uppreisnar í Reykjavík.

Greinin birtist fyrst á Vísi 28. apríl 2022