Besti vinur mannsins eða vina­legur ó­vinur?

Fyrstu hundarnir á Íslandi komu hingað með landnámsmönnum í kringum árið 870. Síðan þá hefur stofninn þróast og stækkað, tegundum fjölgað og getum við verið stolt af okkar eigin tegund, Íslenska fjárhundinum, sem nýtur töluverðar sérstöðu þar sem afbrigðið var lengi vel einangrað frá öðrum afbrigðum.

Þrátt fyrir að hundurinn hafi fylgt okkur íslendingum allt frá því land byggðist upplifa hundaeigendur sig oft óvelkomna í samfélaginu með sínum besta vini. Fá svæði eru fyrir hunda til að ganga lausir, hundasvæði þar sem eigendur geta hist með hundana sína eru örfá, hundar eru ekki velkomnir nema á örfáa opinbera staði og alls ekki í fjölbýlishús nema með samþykki 2/3 íbúa. Að ónefndu ofnæmi fyrir hundum sem virðist hrjá allt of marga íslendinga og trónum við væntanlega á toppnum þar miðað við höfðatölu. Það er því ekki að undra að hundaeigendur upplifi sig sem annars flokks, á jaðrinum, í hæfilegri fjarlægð frá „hundalausum“ einstaklingum.

Þjónustum eigendur og besta vin þeirra betur

Í Reykjavík eru skráðir um 2.000 hundar en talið er að 9.000 hundar séu í borginni samkvæmt skýrslu stýrihóps um þjónustu við gæludýr. Garðabær hefur ekki farið í þá vinnu að greina þjónustu við gæludýr en ætla má að svipað hlutfall sé skráð hér í Garðabæ. Árið 2020 voru skráðir um 550 hundar í Garðabæ og miða við hlutfall í Reykjavík getum við áætlað að það hafi verið um 2.500 hundar í bænum árið 2020. Garðabær er því að fara á mis við á milli 14 og 28 milljónir á ári í skráningargjöld. Það þarf að skoða í hverju vandinn leynist þegar kemur að skráningu en það þarf klárlega að bæta þjónustuna til þess að auka skráningu.

Það er sár vöntun á svæðum fyrir hunda og raddir hundaeigenda í Garðabæ um úrbætur ekki fengið hljómgrunn. Hundar þurfa að geta hlaupið frjálsir og leikið við aðra hunda.Það þarf að útbúa leiksvæði fyrir hunda til að fá frelsi, til að fá tækifæri til að umgangast aðra hunda og fyrir hundaeigendur til að koma saman. Svæði þar sem einnig væri hægt að bjóða upp á námskeið í uppeldi og þjálfun. Þetta er ekkert nýtt á nálinni þar sem slík svæði þekkjast vel í í öðrum löndum og nýtast vel.

Við í Viðreisn í Garðabæ viljum koma til móts við hundaeigendur og skapa umhverfi í Garðabæ þar sem besti vinur mannsins er velkominn en ekki vinalegur óvinur.

Greinin birtist fyrst á Vísi 5. maí 2022