Er Sjálf­stæðis­flokk­urinn hættur að styðja val­frelsi í skólum?

Í Garðabæ áttu sjálfstætt starfandi skólar best með að starfa. Hér hefur stjórnmálafólk staðið með rekstrarumhverfi þeirra. Þeir hafa sagt hátt og skýrt að með hverju grunnskólabarni eigi að fylgja 100% framlag, óháð þeim skóla sem valinn er. Á móti hefur innheimta skólagjalda verið óheimiluð. Með þessu hefur rekstrarumhverfi sjálfstætt starfandi skólanna löngum verið sambærilegt öðrum skólum.

Ég hef verið stolt af þessari stöðu í Garðabæ og vil verja hana því ég trúi að foreldrar eiga að hafa val fyrir börnin sín. Á undanförnum árum hefur þó sigið á ógæfuhliðina hér í Garðabæ. Við stöndum frammi fyrir því að framlag til sjálfstætt starfandi skóla er að nálgast hin hefðbundnu 75%, sem önnur sveitarfélög greiða.

Sjálfstæðir skólar í Garðabæ ekki lengur fullfjármagnaðir

Rekstrarumhverfi sjálfstæðra skóla í öðrum sveitarfélögum eru þó verið tryggari, því að þeir skólar hafa samhliða getað sótt skólagjöld fyrir eftirstandandi 25% af kostnaði. Við vijlum ekki taka upp skólagjöld í Garðabæ. En þá þarf fullt fjármagn líka að fylgja.

Forysta Garðabæjar í þessu máli og sú prinsipp afstaða að bjóða foreldrum upp á frjálst val er að hverfa. Í stað þess að vera þeim staður grósku og vaxtar stefnir Garðabær í að verða fjandsamlegt sjálfstætt starfandi grunnskólum.

Óvissa um húsnæði

Á sama tíma er óvissa um framtíð um 40 nemenda á miðstigi, því að Garðabær svarar ekki óskum Hjallastefnunnar um stækkun húsnæðis, því skólinn er löngu sprunginn. Það er greinilegt að það er af sem áður var að Sjálfstæðisflokkurinn og Garðabær sé vitinn sem aðrir hafa getað fylgt þegar að kemur að valfrelsi í skólum.

Hafnarfjörður og Reykjavík stíga fram

Fréttir berast úr öðrum sveitarfélögum um að þau hafi ákveðið að standa sig betur í þessum málum. Meira að segja Hafnarfjörður hefur ákveðið að láta 100% framlag af landsmeðaltali fylgja barni í sjálfstætt starfandi skóla. Reykjavík ákvað svo í gær að tryggja órofið skólastarf í Öskju og auka húsnæðisstuðning við Hjallaskólann, auk þess sem samið var um framtíðarlausn skólasamfélagsins.

Hér blasir við alveg nýr veruleiki. Sveitarfélög sem hingað til hafa ekki þótt í hópi þeirra framsæknu í stuðningi við rekstrarumhverfi sjálfstætt starfandi grunnskóla eru að stíga fram og bæta við stuðninginn. Sveitarfélagið sem hefur þar verið í forystu er hins vegar að láta eftir síga og það er enginn innan meirihluta Sjálfstæðisflokksins þar sem stendur upp og ver þennan valkost foreldra, að geta sent börnin sín í sjálfstæðan skóla.

Af sem áður var

Fyrir tveimur áratugum bjó í Garðabæ framsækni og kjarkur til þess að fara nýjar leiðir. Að brjótast út úr kerfinu, vera hreyfiafl nýrra hugmynda í skólamálum og tryggja fjölbreytt rekstrarform. Þess í stað er í dag að teiknast upp mynd ómöguleikans. Ómöguleika sjálfstætt starfandi grunnskóla til að vaxa og blómstra í umhverfi þar sem staðið er með fjölbreytileikanum. Ómöguleika þess að í Garðabæ verði alvöru valfrelsi um skóla fyrir börn og foreldra. Því hljóta Garðbæingar að spyrja, er Sjálfstæðisflokkurinn hættur að styðja sjálfstæði í skólum.

Greinin birtist fyrst á Vísi 6. maí 2022