Getnaðar­kapp­hlaupið á milli mín og sveitar­fé­lagsins

Nú er að hefjast undirbúningstímabil vítamína og fæðubótaefna enda vertíð framundan. Um þessar mundir er grasið að grænka og á næsta leyti fara jafnaldrar okkar og fleiri á barneignaraldri að keppast um að ná sem flestum umferðum inní svefnherbergi til þess að reyna að hnoða saman fóstur. Það vill nefnilega svo til að ef getnaður á sér stað í júní og júlí mánuði að þá er von á börnum í mars og apríl. Og afhverju skiptir þetta máli kann margur að spyrja sig?

Mars og apríl hafa nefnilega verið gósentíð þegar kemur að fæðingum hvítvoðunga og fólk jafnvel talið sig hafa dottið í lukkupottinn með stækkun fjölskyldunnar á þeim tíma árs, en það er einmitt sá tími sem gera má ráð fyrir eins stuttum tíma á milli loka fæðingarorlofs og raunhæfum möguleika þess að fá pláss á leikskóla – eða u.þ.b. 6 mánuðir. Tímabilið sem um ræðir nær um það bil yfir tvö varptímabil kvenna og annarra með leg ef stefnt er að fæðingu barns eða barna í mars eða apríl. Þetta hefur verið orðið á götunni á meðal ungs fólks á barneignaraldri í dag.

Auðvitað er þetta ekkert svona einfalt. Börn gera oft ekki boð á undan sér. Fólk sem hefur skipulagt barneignir veit að þetta er ekkert endilega svona. Það er fásinna að halda að börn komi eftir pöntun, en með sprengingu í fæðingum á covid-tímum er útlitið enn svartara. Við þurfum úrræði og raunhæfar lausnir.

Við í Viðreisn í Kópavogi skiljum vandamálið. Við viljum stöðva getnaðarkapphlaupið og boðum lausnir. Við áttum okkur þó á því að vandinn verður ekki leystur á einni nóttu. Við stöndum frammi fyrir þremur megin áskorunum. Í fyrsta lagi stöndum við frammi fyrir mönnunarvanda. Í öðru lagi er ljóst að árgangar 2021 og 2022 eru töluvert stærri en árgangar á undan. Í þriðja lagi hefur uppbygging leikskóla ekki haldist í hendur við þéttingu byggðar.

Við í Viðreisn viljum efla til sérstakts átaks í þjónustu við 12 – 18 mánaða gömul börn, m.a. með því að fjölga markvisst ungbarnadeildum á leikskólum, stefna að opnun ungbarnaleikskóla og bjóða 12 mánaða börnum pláss. Þá teljum við brýnt að gerðar verði breytingar á starfsumhverfi leikskólakennara m.a. með samræmingu starfsumhverfis leik- og grunnskólakennara. Við þurfum nefnilega að standa vörð um mannauðinn okkar og fara í frekari rýni á því hvernig gera megi starfsumhverfi leikskólanna eftirsóknaverðara.

Við erum opin fyrir því að opna á fjölbreyttari rekstrarform leikskóla. Við boðum heimgreiðslur til foreldra þeirra barna sem kjósa, eða þurfa, að vera heima með barnið sitt frá því að fæðingarorlofi líkur, eða þar til það kemst inn á leikskóla. Okkar langtímamarkmið er að gera leikskólann gjalfrjálsan, en okkar fyrsta markmið þar að lútandi er að gera leikskólavist gjaldfrjálsa hjá fimm ára börnum í sex tíma á dag.

Greinin birtist fyrst á Vísi 10. maí 2022