Við erum ekki til­búin fyrir skólann

Það eru tímamót í skólamálum Garðabæjar. Okkur hefur fjölgað hratt, sérstaklega barnafjölskyldum. Urriðaholtið hefur byggst upp á miklum hraða og annað hverfi á leið í uppbyggingu. Þetta eru tímamót sem kalla á pólitíska forystu sem sýnir framsækni og kjark. Kjark til ákvarðanatöku og samtals við íbúa um hvert skuli stefna.

Ábendingar sérfræðinga ekki hátt skrifaðar?

Í byrjun þessa árs var kynnt skýrsla VSÓ um framtíðarhorfur, fjölgun íbúa og um leið nemenda og mat á þeim innviðum sem við höfum til að mæta þeirri þróun. Viðbragðsleysi meirihlutans hingað til við þessari öru íbúaþróun hefur því miður valdið mörgum barnafjölskyldum miklum óþægindum. Sérstaklega barnafjölskyldum með börn á leikskólaaldri. Og niðurstöður skýrslunnar bíða enn úrvinnslu meirihlutans.

Fyrir þremur àrum birtist önnur skýrsla: úttekt á stjórnsýslu sveitarfélagsins, þar sem lögð var áhersla á mikilvægi þess að bregðast skjótt við viðhaldsþörf á skólahúsnæði Garðabæjar. Til þess að standa undir þeirri brýnu þörf þarf að forgangsraða töluverðu fjármagni til viðhalds skólahúsnæðis.

Stefnuleysið sem bitnar á valfrelsinu

Óvissa ríkir einnig um rekstrarframlag til sjálfstætt starfandi skóla. Í samningi á milli rekstraraðila og sveitarfélagsins er viðauki um óleystu viðfangsefnin. Þar á meðal er rekstrarframlagið, hryggjastykkið fyrir farsælum rekstri sjálfstætt starfandi grunnskóla. Það er aðkallandi að taka hér ákvörðun um stefnu og framkvæmd, í stað þess að hafa viðauka hangandi yfir sér þar sem öll stóru málin standa enn út af samningaborðinu.

Það þarf að bæta aðgengi barna og ungmenna að félagsstarfi fèlsgsmiðstöðva. Börn og ungmenni í Urriðaholti sitja enn á hakanum og engin uppbygging virðist vera á dagskrá meirihlutans fyrr en næsti áfangi skólans er tilbúinn. Við þurfum meiri framsýni í aðgerðum því þetta er ekki bara bagalegt, heldur ýtir undir neikvæða upplifun barna og ungmenna af því að vera búsett í Urriðaholti, nýjasta hverfi Garðabæjar. Að ekki sé talað um aðgengi að almenningssamgöngum.

Formaður skólanefndar og forseti bæjarstjórnar skrifaði grein nýverið sem bar heitið Er allt tilbúið fyrir skólann? Í þeirri grein nefnir bæjarfulltrúinn hins vegar ekkert af þessum stóru verkefnum sem blasa við og eru þau verkefni sem koma upp í huga okkar í Viðreisn þegar við veltum fyrir okkur svarinu við hvort allt sé tilbúið.

Garðabær aftur í forystu

Við í Viðreisn höfum ítrekað kallað eftir pólitískri sýn, samtali og áformum meirihlutans sem mætir þeirri öru og spennandi íbúaþróun sem á sér stað í bænum okkar þessi misserin. Þar höfum við lagt fram hugmyndir til lausna, sem alla jafna er sópað út af borðinu. Það eru hugmyndir sem bjóða upp á kjark til þess að taka skólamálin àfram og koma Garðabæ aftur í forystu sveitarfélaga. Hvort heldur sem á við skóla rekna af sveitarfélaginu sjálfu eða þá sjálfstætt starfandi.

Greinin birtist fyrst á Vísi 26. ágúst 2022