Sam­vinna og sam­starf eða sam­eining sveitar­fé­laga?

Nýverið endurnýjuðu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu samkomulag um samstarf án skuldbindinga þvert á velferðarsvið sveitarfélaganna. Þau eru fjölmörg verkefnin sem sveitarfélögin hafa samráð um ekki síst um þjónustu er varðar velferð. Eitt af því góða sem heimsfaraldurinn leiddi af sér var aukið samráð fræðslu- og velferðarsviða.

 

Þvert á sveitarfélög sameinuðust kraftar fólksins í brúnni enda verkefnið einstakt, ólíkt öllum öðrum verkefnum sem áður hafa komið á borð stjórnsýslunnar. Samræmdar aðgerðir, samkomutakmarkanir, fagleg og ábyrg ákvarðanataka sem hafði mikil áhrif á daglegt líf fólks, barna, ungmenna og viðkvæmra hópa líkt og fatlaðra og aldraðra.Heilt yfir þykir hafa tekist vel til og þau sem stóðu í brúnni eru sammála um að samstarfið skipti máli, gerði ákvarðanir sem teknar voru betri og öruggari.

 

Þegar horft er til framtíðar er mikilvægt að rýna tækifærin og grípa þau sem flest. Horfa vítt og vinna að almennri farsæld allra. Hrista af sér gamlan vana og venjur. Hugsa út fyrir boxið eins og sagt er. Skapa nýja umgjörð um það sem úrelt er. Það sem ekki virkar.

 

Til þess er pólitíkin.

 

Til þess að horfa á stóru myndina, samfélagið. Hvernig byggjum við upp gott samfélag fyrir öll, óháð stétt eða stöðu eða búsetu.

 

Týnum okkur ekki í því smáa, heldur tökum höndum saman, þvert á sveitarfélög og eflum samstarf með eða án skuldbindinga. Eflum kerfin okkar, tökum þau áfram inn í framtíðina og búum svo um að þau þjóni tilgangi sínum en standi ekki í stað. Þannig getum við tryggt að öll njóti lögbundinnar þjónustu sem hið pólitíska svið getur verið stolt af að hafa byggt upp saman.

 

Tími umræðunnar um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er núna. Sýnin er ólík en eitt er víst að öll samtöl leiða af sér nýjar víddir, nýja sýn. Þó sýnin sé ekki endilega sú sama fyrir öll skapar hún ný tækifæri til að grípa.

 

Undirstöður eru sterkar. Samráðið er til staðar, samstaðan er til staðar og fjölmörg verkefni eru unnin og teknar ákvarðanir um saman. Lyftum umræðunni, skiptumst á skoðunum. Vegum og metum. Og sjáum hvort við mögulega komumst að nýrri niðurstöðu en þeirri sem við göngum út frá í dag.

Greinin birtist fyrst á Vísi 29. desember 2022