Garðbæingar reyna að smygla plássfrekum iðnaði inn á græna trefilinn og í bakgarð Kópavogsbúa

Margir muna eftir „græna treflinum“ svokallaða úr svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins en hann á að mynda samfellda umgjörð kringum borgina og skilgreinir mörk þéttbýlis og útmerkur. Samkomulag er um að græni trefillinn eigi að vera útivistarsvæði með samblöndu af skógræktarsvæðum og ósnortinni náttúru. Tilgangur hans er að íbúar á höfuðborgarsvæðinu geti notið útivistar í næsta nágrenni við byggðina.

Um þessar mundir er unnið að því að því að þétta blandaða byggð í Garðabæ, meðal annars með þéttingu við Hafnarfjarðarveg, þar sem biðstöðvar Borgarlínu munu liggja, og endurnýtingu athafnasvæða í grennd við miðbæinn. Úthýsa á iðnaði og plássfrekri starfsemi frá miðbænum og íbúabyggðum. Í bígerð er að úthluta nýjum lóðum fyrir fyrirtæki, þar með talið plássfrekan iðnað sem nú er staðsettur á fyrirhuguðum uppbyggingar- og þéttingarsvæðum. Vegna þessara áforma hafa Garðbæingar óskað breytingar á gildandi svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Þær breytingar snúast um að færa vaxtarmörk svæðisins þannig að þeir geti skipulagt nýtt athafnasvæði fyrir iðnað og plássfreka starfsemi við Rjúpnahlíð. Fyrir þá sem ekki eru kunnugir staðháttum þá liggur hið fyrirhugaða athafnasvæði Garðbæinga í bakgarði Austurkórs í Kópavogi. Þar búa þúsundir Kópavogsbúa á öllum aldri í návígi við náttúruna og frábær útivistarsvæði á græna treflinum.

Á fundi svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins þann 14. október síðastliðinn samþykkti nefndin fyrirliggjandi lýsingu um breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040. Það eru mér mikil vonbrigði að fulltrúar Kópavogs í svæðisskipulagsnefnd (þar situr fulltrúi frá Vinum Kópavogs og annar frá Sjálfstæðisflokki) hafi samþykkt lýsinguna athugasemdalaust og án bókana.

Erindið var síðan sent aðildarsveitarfélögum til afgreiðslu sbr. 1. mgr. 23. gr. skipulagslaga. Skipulagsráð Kópavogsbæjar tók erindið fyrir á fundi þann 19. desember síðastliðinn. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Ég lýsti á fundi skipulagsráðs, og lýsi enn, yfir andstöðu við þá tillögu Garðbæinga að ganga svo freklega á græna trefilinn og staðsetja grátt og mengandi iðnaðarhverfi í bakgarði þúsunda Kópavogsbúa. Ég mun því hafna tillögunni þegar hún kemur til afgreiðslu skipulagsráðs og bæjarstjórnar.

Séu athafnasvæði Garðbæjar fullbyggð innan bæjarmarka sveitarfélagsins þá væri upplagt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu sammæltust um hvar slíkan iðnað skuli staðsetja. Garðbæingar eiga ekki tilkall umfram aðra til eins besta græna svæðis höfuðborgarsvæðisins á kostnað íbúa í öðrum sveitarfélögum.

Greinin birtist fyrst á Vísi 2. janúar 2023